20. apríl 2007
Hundruð gesta á opnum degi Háskólans á Bifröst
 |
| Menn létu sér ekki leiðast í biðröðinni við hoppikastalann |
Í hátíðarsalnum Hriflu fór fram kynning á öllu námi við skólann. Þar eru reknar þrjár háskóladeildir auk frumgreinadeildar og boðið er upp á fjölbreyttar línur í meistaranámi. Þá er við skólann öflug símenntunardeild sem meðal annars stendur fyrir diplómanámi í verslunarstjórnun og vinsælu þriggja mánaða námskeiði fyrir konur sem starfa við rekstur eða hafa áhuga að hefja slíka starfsemi. Kennarar, starfsfólk og nemendur voru til viðtals og svöruðu fyrirspurnum gestanna. Nemendur stýrðu skoðunarferðum um háskólaþorpið þar sem gestum gafst kostur á að kynna sér alla aðstöðu á svæðinu bæði varðandi nám og búsetu. Þá tóku þátt í kynningunni fulltrúar leikskólans Hraunborgar sem staðsettur er í háskólaþorpinu og fulltrúar grunnskólans á Varmalandi.
Félagar úr hestamannafélaginu Röst, sem starfrækt er á Bifröst, teymdu undir þeim börnum sem það vildu og fóru þar sumir á bak í fyrsta sinn. Þá var boðið upp á kaffi og vöfflur sem konur úr Kvenfélagi Stafholtstungna sáu um. Gaukurinn nefnist félagsmiðstöð unglinga á Bifröst og krakkar þaðan sáu um að hafa ofan af fyrir yngri börnunum í hoppikastala og leikjum.
Opni dagurinn hefur verið haldinn sumardaginn fyrsta á Bifröst um nokkurra ára skeið.