Fréttir
13. apríl 2007

Máttur kvenna

Laugardaginn 14. apríl lýkur formlega námskeiðinu Máttur kvenna sem nú er haldið í fjórða sinn í Háskólanum á Bifröst. Um 30 konur útskrifast að þessu sinni eftir þriggja mánaða námstörn.          

                                                                          

Útskriftarhópur vorið 2005
Máttur kvenna er 3ja mánaða rekstrarnám sem hefst með vinnuhelgi á Bifröst. Kennsla fer fram í fjarnámi og geta þátttakendur hlustað á fyrirlestra á netinu og unnið verkefni hvenær sem þeim hentar. Kennslugreinar eru bókhald, upplýsingatækni, markaðs- og sölumál, fjármál og áætlanagerð. Helstu markmið námsins eru að gera konur í atvinnurekstri hæfari til að reka fyrirtæki sín, að auka arðsemi fyrirtækja og efla atvinnulíf á landsbyggðinni. Hátt á annað hundrað konur hafa nú lokið námskeiðinu sem reyndar hefur orðið mörgum þeirra hvatning til frekara náms. Umsjónarmaður námskeiðsins er Hulda Ingibjörg Rafnarsdóttir, verkefnastjóri símenntunar við Háskólann á Bifröst.

 

Væntanlegur útskriftarhópur mætir á Bifröst síðdegis föstudaginn 13. apríl en námskeiðinu lýkur að vanda með vinnuhelgi. Deginum verður varið í nám og fyrirlestra og á laugardagsmorgun er fyrirhuguð óvissuferð.

 

Á laugardaginn kl. 14.00 hefst svo útskriftarathöfn í Hriflu. Dr. Ágúst Einarsson, rektor, setur samkomuna og dr. Lilja Mósesdóttir, prófessor í viðskiptadeild, heldur hátíðarræðu. Dagskránni lýkur með útskrift og ræðu rektors. Að athöfn lokinni verður gestum boðið að þiggja léttar veitingar í Kringlu.

 

Senda á Facebook
Háskólinn á Bifröst | 311 Borgarnes | Sími: 433 3000 | Fax: 433 3001 | bifrost@bifrost.is | Afgreiðslutími 08:00 - 12:00 og 13:00 - 16:00 | Vefstjóri