12. apríl 2007
Bernhard Bernhardsson hefur störf hjá Sparisjóði Mýrasýslu
Bernhard Bernhardsson lætur af störfum sem lektor við Háskólann á Bifröst á næstunni. Hann hefur verið ráðinn forstöðumaður viðskiptaþjónustu Sparisjóðs Mýrasýslu og tekur jafnframt sæti í framkvæmdastjórn fyrirtækisins.
Bernhard útskrifaðist sem viðskiptafræðingur frá Bifröst árið 2001 og lauk MBA gráðu frá Edinborgarháskóla ári seinna. Hann hefur gegnt stöðu lektors við viðskiptadeild frá árinu 2002 og var forseti sömu deildar skólaárið 2005-2006.
Bernhard hefur unnið fyrir Sparisjóð Mýrasýslu samhliða störfum sínum á Bifröst en hann situr m.a. í stjórn fjárfestingafélagsins Vesturlands hf og í stjórn Sigurplasts fyrir hönd sjóðsins.
Bernhard mun áfram koma að skólamálum en hann er formaður skólanefndar Menntaskóla Borgarfjarðar.
Stjórnendur Bifrastar óska Bernhard til hamingju með hið nýja starf og þakka honum vel unnin störf á Bifröst.