12. apríl 2007
Rektor fjallar um tækifæri Vesturlands í byltingu atvinnuhátta
Í erindi dr. Ágústs EInarssonar, rektors Háskólans á Bifröst, á aðalfundi Menningarráðs Vesturlands kom m.a. fram að skapandi atvinnugreinar verði mikilvægustu atvinnugreinar framtíðarinnar. Fram að seinni hluta átjándu aldar var frumframleiðsla ráðandi í atvinnuháttum; á nítjándu öld var iðnaðurinn í meginhlutverki og þjónusta á þeirri tuttugustu. 21. öldin verður hins vegar öld skapandi atvinnugreina á borð við listir ýmiss konar, rannsóknir og vísindi, safnastarfsemi, tölvu- og hugbúnaðarþjónustu, útgáfu o.fl. Dr. Ágúst vísaði í niðurstöður skýrslu um ímynd Vesturlands sem unnin var af Rannsóknamiðstöð Háskólans á Bifröst en þar kemur fram að um þriðjungur landsmanna er tilbúinn að íhuga búsetu í Borgarfirði. Þar hefur samfélagið breyst úr landbúnaðarsamfélagi í skólasamfélag á skömmum tíma og ýmsir möguleikar skapast til atvinnuuppbyggingar. Sóknarfærin í héraði felast einkum í náttúru og menningu og mikilvægt er að menn grípi þau tækifæri sem nú gefast til atvinnuuppbyggingar á því sviði.
Á síðasta ári héldu Háskólinn á Bifröst og Menningarráð Vesturlands ráðstefnu um menningarmál sem bar yfirskriftina Menning - spenning fyrir hvern? Ráðstefnan tókst vel og hefur nú verið ákveðið að vinna að frekara samstarfi Menningarráðs Vesturlands og Háskólans á Bifröst.