Fréttir
16. apríl 2007

Sumardagurinn fyrsti - opið hús í Háskólanum á Bifröst

Fjölskyldufólk setur svip á háskólaþorpið
Tekið verður á móti gestum og gangandi milli klukkan 14.00 og 17.00. Gestir fá leiðsögn um háskólaþorpið og geta kynnt sér aðbúnað og fjölbreytt leiguhúsnæði sem og aðra aðstöðu á borð við leikskóla, líkamsræktarsali, kaffihús, bókasafn og lestraraðstöðu.

 

Áhugasamir geta spjallað við kennara og kynnt sér námið frekar sem og þær leiðir sem hægt er að fara í námi við Háskólann á Bifröst. Stjórnendur skólans ræða um umsóknir og úrvinnslu þeirra við þá sem þess óska.

 

Nemendur skólans verða til taks til að svara spurningum sem snúa að daglegu lífi nemenda og annarra íbúa svæðisins og námsgögn verða kynnt. 

 

Boðið verður upp á veitingar og frímiða í Hvalfjarðargöngin fyrir heimferð.

 

 

 

 

 

 

Í bréfi til nýstúdenta og verðandi stúdenta sem dagsett er í dag segir dr. Ágúst Einarsson, rektor:

 

Ágæti útskriftarnemandi

 

 

Ég vil fyrir hönd Háskólans á Bifröst óska þér innilega til hamingju með hinn væntanlega áfanga í lífi þínu. Þú stendur núna á krossgötum og þar ákveður fólk í hvaða átt það fer. Ég vil hvetja þig eindregið að huga vel að háskólanámi nú þegar í haust því án háskólaprófs verður sífellt erfiðara að fá góða og vel launaða vinnu í framtíðinni.

 

Háskólinn á Bifröst býður upp á fjölbreytt nám í félagsvísindum í þremur deildum, þ.e. BS í viðskiptafræði, BS í viðskiptalögfræði og BA í heimspeki, hagfræði og stjórnmálafræði. Á öllum þessum sviðum er einnig boðið upp á meistaranám síðar. Námið er hægt að stunda á Bifröst sem er eini „campus“-háskólinn á Íslandi í félagsvísindum. Námið byggir á raunhæfum verkefnum, unnið er í litlum hópum og flestir nemendur okkar fara utan til námsdvalar eina önn, t.d. til Kína.

 

Hjá okkur á Bifröst er háskólalífið eins og það gerist best. Hér er barnvænt umhverfi með leikskóla, sem er rekinn eftir Hjallastefnunni, auk grunnskóla í næsta nágrenni. Um 70% af nemendum okkar eru komnir í stjórnunarstöðu í atvinnulífinu innan 5 ára frá námslokum. Einnig er hægt að stunda nám í Háskólanum á Bifröst í fjarnámi en við erum með eitt fullkomnasta kerfi til fjarkennslu sem þekkist í Evrópu og Bandaríkjunum.

 

Ég hvet þig eindregið að kynna þér námsframboð Háskólans á Bifröst á vefsíðu skólans www.bifrost.is

 

Við höldum Opinn dag á Bifröst fimmtudaginn 19. apríl, sem er sumardagurinn fyrsti, frá kl. 14 til 17 þar sem staðurinn og námið verður kynnt og boðið upp á margvíslegar veitingar og skemmtun. Þú og þínir eruð hjartanlega velkomin á hinn opna dag.

 

Að lokum endurtek ég árnaðaróskir til þín og óska þér og fjölskyldu þinni velfarnaðar í framtíðinni.

 

 

Dr. Ágúst Einarsson

rektor Háskólans á Bifröst

 

Senda á Facebook
Háskólinn á Bifröst | 311 Borgarnes | Sími: 433 3000 | Fax: 433 3001 | bifrost@bifrost.is | Afgreiðslutími 08:00 - 12:00 og 13:00 - 16:00 | Vefstjóri