28. febrúar 2007
Skiptir útlitið máli fyrir frama í starfi?
Á morgun, 1. mars, mun eiga sér stað úrslitaslagur ræðukeppni Bifrastar. Verða það lið lagadeildar annars vegar og frumgreinadeildar hins vegar sem takast á um sannleiksgildi fullyrðingarinnar: Útlit skiptir máli fyrir frama í starfi.
Frumgreinadeild mun mæla með fyrrnefndri fullyrðingu en lagadeild á móti.
Oddadómari verður rektor skólans, Ágúst Einarsson en meðdómarar Þórir Páll Guðjónsson og Birgir Hermannsson.
Lið frumgreinadeildar skipa:
Pétur Darri Sævarsson, Ingvar Christiansen, Ingi Björn Kárason og Álfheiður Ágústsdóttir
Lið lagadeildar skipa:
Valgeir Már Levy, Elín Björg Ragnarsdóttir, Jónína Brynjólfsdóttir og Guðmundur Jóhann Árnason
Búast má við spennandi keppni og er viðureignin, sem verður í Hriflu og hefst kl. 20, öllum opin.