27. febrúar 2007
Málstofa: Dreifing tónlistar og kvikmynda á netinu
Rán er cand. jur frá Háskóla Íslands og M.Phil frá Edinborgarháskóla. Hún er formaður áfrýjunarnefndar á sviði hugverkaréttinda á sviði iðnaðar og einnig formaður höfundaréttindanefndar menntamálaráðuneytisins.
Rán hóf störf við lagadeild Háskólans í Reykjavík árið 2003 og hefur auk þess m.a. starfað sem framkvæmdastjóri Fjölís, sem deildarstjóri í iðnaðar- og viðskiptaráðuneytinu, við verkefnavinnu hjá eftirlitsstofnun EFTA í Brussel í Belgíu og sem deildarsérfræðingur hjá Einkaleyfastofunni.