23. febrúar 2007
Fjölmennur fjarnámsfundur
Fundinn sóttu jafnt tæknimenn sem umsjónarmenn fjarnáms en gestirnir komu frá Háskóla Íslands, Kennaraháskóla Íslands, Háskólanum í Reykjavík, Háskólanum á Akureyri og Háskólanum á Hólum. Kynnt voru þau kerfi sem notuð eru við kennsluna í viðkomandi skólum og þátttakendur ræddu kosti þeirra og galla og skiptust á skoðunum varðandi fjarnám almennt.
Námskjárinn svokallaði sem notaður er við kennslu og fjarnám í Háskólanum á Bifröst er í eigu félagsins Námskjár ehf. en að því standa auk Háskólans á Bifröst; Landbúnaðarháskólinn á Hvanneyri, Fjöltækniskólinn og hugbúnaðarfyrirtækið Nepal í Borgarnesi og er eignaraðild þessara aðila jöfn. Námskjárinn er nú notaður við kennslu í allnokkrum framhaldsskólum.