23. febrúar 2007
Fyrirlestur á vegum samtakanna Blátt áfram
Foreldrafélag Hraunborgar, íbúaráð og Ungmennafélag Stafholtstungna standa fyrir fyrirlestri á vegum Blátt áfram næstkomandi mánudagskvöld, þann 26. febrúar kl. 20.00 í Hriflu.
Blátt áfram eru sjálfstæð félagasamtök og er tilgangur samtakanna að efla forvarnir gegn kynferðislegu ofbeldi á börnum á Íslandi. Fyrirlesturinn er ætlaður öllum þeim sem vinna með börnum og unglingum, foreldrum og öðrum sem bera ábyrgð á börnum. Sigríður Bjarnadóttir mun koma og ræða um forvarnarverkefnið Blátt áfram og leiðir til að fyrirbyggja kynferðislegt ofbeldi á börnum. Leitað verður svara við spurningum á borð við: ”Hver eru merkin?” og ”Hvert á að leita hjálpar?” ”Af hverju börnin segja ekki frá?” og ”Hvernig og af hverju á ég að tala um þetta við börnin?”
Á heimasíðu Blátt áfram www.blattafram.is má finna ýmsar gagnlegar upplýsingar. Blái borðinn sem er alþjóðlegt tákn gegn ofbeldi á börnum mun verða til sölu að loknum fyrirlestri og kostar 1000 kr. en ágóði af sölu hans rennur til samtakanna.
Foreldrafélagið, íbúaráð og ungmennafélagið hvetja alla til að mæta enda er um brýnt málefni að ræða sem alla varðar. Fyrirlesturinn mun standa yfir í um eina og hálfa klukkustund.