21. febrúar 2007
Magnús Scheving heldur fyrirlestur um frumkvöðla- og leiðtogahæfni
Magnús Scheving frumkvöðull, framkvæmdastjóri og stofnandi Latabæjar heldur fyrirlestur í Háskólanum á Bifröst föstudaginn 23. febrúar. Fyrirlesturinn fjallar um frumkvöðla- og leiðtogahæfni og verður fluttur á ensku. Hann hefst kl. 12 í Hriflu.
Efni fyrirlestursins er Latibær, hugmyndafræðin og framtíðin. Tilefnið er að verið er að gera kvikmynd um líf og starf Magnúsar og verður þessi atburður festur á filmu. Sérstakur hópur kvikmyndagerðarmanna kemur til landsins af því tilefni og óskaði Magnús eftir því að þessi hluti kvikmyndarinnar yrði tekinn upp á Bifröst en Magnús er Borgfirðingur eins og menn vita. Íbúar háskólaþorpsins eru að vonum ánægðir með að eiga von á góðum gestum en þættirnir um Latabæ eru í miklum metum meðal barnanna þar.
Það er sjónvarpsstöðin Discovery Channel sem vinnur að gerð myndarinnar um Magnús en hún er hluti af þáttaröð um frumkvöðla víðsvegar í heiminum.