14. febrúar 2007
Opinn fyrirlestur á vegum viðskiptadeildar
Fyrri hlutinn fyrirlestrarins fjallar um fjármögnun frumkvöðlafyrirtækja og verður fluttur á íslensku en seinni hlutinn fjallar um starfsmannastjórnun í alþjóðlegu fyrirtæki á svið hugbúnaðar og verður seinni hlutinn fluttur á ensku. CCP hefur meðal annars hannað fjölþátttökuleikinn EVE-Online
Fyrirlesturinn er opinn öllum.
Fyrirtækið CCP hf. var stofnað í júní 1997. Markmiðið var að þróa nýjar tegund tölvuleikja, svokallaða fjölþátttökuleiki. Internetið opnaði möguleika á að þúsundir manna gátu spilað þrívíddarleiki í rauntíma á Netinu. Viðskiptahugmyndin gekk út á það að selja spilurum leikinn og rukka eftir það mánaðarlegt áskriftargjald fyrir að viðhalda og þróa áfram leikjaheiminn. Fyrsti fjölþátttökuleikur CCP er EVE-Online sem kom út í maí 2003.