Fréttir
18. febrúar 2007

Don´t think pink

Talið er að konur taki ákvarðanir um allt að 80% þeirra útgjalda sem fara til neyslu í vestrænum samfélögum í dag. Þar af eru konur á aldrinum 18 til 40 ára atkvæðamestar. Því má ætla að meginviðfangsefni þeirra sem stunda viðskipti sé að ná til þessa áhrifamikla hóps. En  hvað er það sem fyrst og fremst fær konur til að kaupa og hvernig fara menn að því að auka hlut sinn á þessum mikilvæga markaði? Lisa Johnson annar tveggja höfunda bókarinnar Don´t think pink fjallar um rannsóknir sínar á kauphegðun kvenna.
Lisa er frumkvöðull í markaðsrannsóknum og sérfræðingur í neytendahegðun, framkvæmdastjóri The ReachGroup, ráðgjafi og rithöfundur og hefur unnið með stórum og smáum fyrirtækjum að markaðsmálum. Fundir með Lisu eru fyrir fólk af báðum kynjum í viðskiptalífinu til að átta sig á því að markhópur fyrir verslun og þjónustu er ekki auðtrúa "bleikur" kvennahópur. Hann er þvert á móti ýmiss konar kvennahópar sem annast kaup á vörum og þjónustu fyrir sjálfar sig, börn, maka og foreldra auk þess sem verulegur og e.t.v. stærstur hluti af innkaupum fyrirtækja ræðst að miklu leyti af skoðun þeirra kvenna sem ráða mestu hlutafé á markaði og taka í vaxandi mæli þátt í stjórnum og framkvæmdastjórnun fyrirtækjanna 

Lisa er hér á vegum Samtaka verslunar og þjónustu og Félags kvenna í atvinnurekstri og hún heldur annan fyrirlestur í Salnum í Kópavogi á þriðjudag.

Senda á Facebook
Háskólinn á Bifröst | 311 Borgarnes | Sími: 433 3000 | Fax: 433 3001 | bifrost@bifrost.is | Afgreiðslutími 08:00 - 12:00 og 13:00 - 16:00 | Vefstjóri