Allir háskólar landsins kynna námsframboð sitt í Háskólabíói, Borgarleikhúsinu og húsnæði Kennaraháskólans.
Laugardaginn 17. febrúar kynna háskólar landsins námsframboð sitt fyrir næsta kennsluár. Kynningin fer fram á þremur stöðum í borginni. Í Borgarleikhúsinu verða Háskólinn í Reykjavík, Háskólinn á Akureyri, Listaháskóli Íslands, Háskólinn á Bifröst, Landbúnaðarháskóli Íslands og Háskólinn að Hólum. Kennaraháskóli Íslands verður í húsnæði skólans í Stakkahlíð og Háskóli Íslands kynnir sitt námsframboð í Háskólabíói.
Persónuleg ráðgjöf um mikilvæga ákvörðun
Nemendur háskólanna, kennarar og námsráðgjafar taka á móti gestum og miðla af reynslu sinni. Einnig verður kynnt margs konar þjónustustarfsemi við nemendur. Búast má við því að um 3.000 gestir sæki námskynningu háskólanna þennan dag því fjölmargir óska eftir að fá þá persónulegu ráðgjöf sem þarna býðst. Margir gestanna eru að taka einhverja stærstu ákvörðun ævinnar, möguleikarnir eru margir og skiptir máli að vanda valið. Gott tækifæri gefst til þess á þessum sameiginlega kynningardegi þar sem kynntar eru u.þ.b. 500 mismunandi námsleiðir.
6 háskólar kynna námsframboð sitt í Borgarleikhúsi
Í Borgarleikhúsinu kynna 6 háskólar fjölbreytt námsframboð á grunn- og meistarastigi: Háskólinn á Akureyri, Háskólinn á Bifröst, Háskólinn í Reykjavík, Hólaskóli – Háskólinn á Hólum, Landbúnaðarháskóli Íslands og Listaháskóli Íslands. Námsframboð þessara skóla er, eins og nöfn þeirra bera með sér, ákaflega fjölbreytt og spannar allt frá hrossarækt og myndlist yfir í hefðbundnari greinar háskólanáms á borð við viðskiptafræði og lögfræði. Kennarar, nemendur og námsráðgjafar verða á staðnum og veita upplýsingar um allt nám sem þessir skólar bjóða.
Ný námskipan og fjölbreytt dagskrá í Kennaraháskóla Íslands
Í Kennaraháskóla Íslands opnar menntamálaráðherra nýja náms- og kennsluskrá í hádeginu og tekur þá formlega gildi ný námsskipan við skólann. Kennarar og stúdentar kynna grunn- og framhaldsnám við skólann kl. 11 - 16. Gestir geta einnig kynnt sér einstök fræðasvið sem hægt er að velja í náminu eins og náttúrufræði, íslensku, upplýsingatækni, stærðfræði og íþrótta- og heilsufræði.
Hægt verður að fylgjast með opinni kennslustund í námskeiðinu Leikir í skólastarfi frá klukkan 12.30 - 15.00. Stúdentaráð kynnir starfsemi stúdentafélags KHÍ og stendur fyrir kaffisölu í Fjöru, veitingasal skólans.
Háskóli Íslands kynnir á fjórða hundruð námsleiðir í grunn- og framhaldsnámi
Í Háskólabíó kynna allar ellefu deildir Háskólans námsframboð sitt í grunn og framhaldsnámi, og eru námsleiðirnar á fjórða hundrað talsins. Námsráðgjafar veita leiðsögn og ráðgjöf og Félagsstofnun stúdenta, Alþjóðaskrifstofa Háskólans, Stúdentaráð, Lánasjóður íslenskra námsmanna, SINE, Fulbrigth og Bóksala stúdenta kynna þjónustu sína. Sérstakir gestir Háskóla Íslands eru fulltrúar danskra háskóla.
Smellið á myndina til að fá nánari upplýsingar.