13. febrúar 2007
Tónleikar í Hriflu - Diddú og Jónas Ingimundarson
Sigrún Hjálmtýsdóttir eða Diddú eins og hún er gjarnan kölluð stundaði framhaldsnám í söng í London og á Ítalíu. Hún á að baki glæsilegan feril sem óperusöngkona og hefur margoft komið fram sem einsöngvari með Sinfóníuhljómsveit Íslands og sungið með fjölmörgum kórum bæði kirkjuleg og veraldleg verk. Þá hefur Sigrún leikið og sungið í sjónvarpsleikritum og kvikmyndum og sungið inn á fjölda hljómdiska.
Jónas Ingimundarson stundaði framhaldsnám við Tónlistarháskólann í Vínarborg. Jónas hefur haldið mikinn fjölda tónleika hér á landi og erlendis og leikið undir hjá öllum helstu söngvurum þjóðarinnar. Þá hefur hann leikið inn á fjölda hljómdiska og honum hefur hlotnast margvísleg viðurkenning fyrir áratuga starf að eflingu tónlistarlífs í landinu.
Þau Jónas og Sigrún eru Borgfirðingum að góðu kunn en bæði hafa þau margoft komið fram á vegum Tónlistarfélags Borgarfjarðar. Skemmst er að minnast tónleika Jónasar og Kristins Sigmundssonar í Reykholtskirkju í nóvember og Vínartónleika þar sem Diddú var í aðalhlutverki sl. vor. Þá er gaman að geta þess að Jónas var í hópi þeirra tónlistarmanna sem fram komu á vegum Tónlistarfélags Borgarfjarðar á fyrsta starfsári þess, veturinn 1966 - 1967.