Fréttir
10. febrúar 2007

Brautskráning frá Háskólanum á Bifröst

Dagskráin hófst á því að Ágúst Einarsson rektor setti hátíðina og flutt var tónlist í boði Íslensku óperunnar. 15 nemendur voru brautskráðir með BS gráðu í viðskiptafræði, þar af fimm nemendur sem stunduðu nám sitt í fjarnámi og 19 nemendur útskrifuðust með BS próf í viðskiptalögfræði. Einn lauk MA prófi í hagnýtum hagvísindum, þrír MA prófi í menningarstjórnum, sex ML prófi í lögfræði og tveir MS prófi í viðskiptafræði. 

Viðurkenningar fyrir framúrskarandi námsárangur hlutu Sigurður Óli Hauksson, BS í viðskiptalögfræði, en hann hlaut viðurkenningu frá Háskólanum á Bifröst fyrir bestan árangur á lokaprófi í viðskiptalögfræði og jafnframt frá Sambandi íslenskra samvinnufélaga fyrir bestan árangur allra BS nema. Helga Sigurðardóttir, BS í viðskiptafræði,  hlaut viðurkenningu háskólans fyrir bestan árangur í viðskiptadeild  og Þórdís Gísladóttir, MA í menningarstjórnun fyrir bestan árangur meistaranema. Þá hlaut Sigurður Árnason, ML í lögfræði, viðurkenningu frá lögmannsstofunni Logos fyrir bestan árangur meistaranema í lagadeild.

Jafnframt hlutu  þrír efstu nemendur hverrar háskóladeildar viðurkenningu skólans fyrir námsárangur en hún felst í því að þeir fá felld niður skólagjöld að fullu, að 2/3 eða til helminga á næstu önn. Þeir nemendur sem bestum árangri náðu og fá skólagjöld felld niður að fullu á vetrarönn eru þau Hafdís Anna Bragadóttir í viðskiptadeild, Bryndís Ósk Jónsdóttir í lagadeild og Guðmundur Ágúst Sæmundsson í félagsvísindadeild.

Í ræðu sinni fjallaði Ágúst Einarsson rektor m.a. um skyldur okkar  hvers við annað sem og við umheiminn og hlutverk háskóla í nútímasamfélagi.

Að athöfn lokinni var gestum boðið upp á veitingar í hinum gamla hátíðarsal Háskólans á Bifröst.

Senda á Facebook
Háskólinn á Bifröst | 311 Borgarnes | Sími: 433 3000 | Fax: 433 3001 | bifrost@bifrost.is | Afgreiðslutími 08:00 - 12:00 og 13:00 - 16:00 | Vefstjóri