7. febrúar 2007
Háskólahátíð laugardaginn 10. febrúar 2007
Dagskráin hefst á því að Ágúst Einarsson rektor setur hátíðina. 15 nemendur verða brautskráðir með BS gráðu í viðskiptafræði, þar af fimm nemendur sem hafa stundað nám sitt í fjarnámi og 19 nemendur útskrifast með BS próf í viðskiptalögfræði. Einn lýkur MA prófi í hagnýtum hagvísindum, þrír MA prófi í menningar- og menntastjórnum, sex ML prófi í lögfræði og tveir MS prófi í viðskiptafræði. Eftir útskrift og verðlaunaafhendingu verður flutt tónlist og dagskránni lýkur með ræðu rektors. Að lokinni athöfn er gestum boðið að þiggja léttar veitingar í Hátíðarsal.