Fréttir
7. febrúar 2007

Tímarit um félagsvísindi hefur göngu sína

Tímaritið verður vettvangur fyrir fræðilegar greinar um ýmis svið félagsvísinda, eins og viðskiptafræði, lögfræði, stjórnmálafræði, hagfræði og önnur fræðasvið.   Greinar í Tímariti um félagsvísindi eru tvenns konar. Annars vegar er um ritrýndar greinar að ræða sem lúta hefðbundnum kröfum vísindasamfélagsins um óháða ritrýningu og hins vegar eru vinnugreinar þar sem ekki eru gerðar sömu kröfur um efni og efnistök og í ritrýndum greinum enda oft um frumgerðir greina að ræða. Í Tímariti um félagsvísindi eru birtar greinar á íslensku og ensku. Greinarnar verða í fyrstu birtar á vef skólans en verða síðan prentaðar og gefnar út árlega.

Ritstjóri Tímarits um félagsvísindi  dr. Grétar Þór Eyþórsson er prófessor við félagsvísindadeild og forstöðumaður Rannsóknamiðstöðvar Háskólans á Bifröst. Dr. Grétar lauk doktorsprófi í stjórnmála- og stjórnsýslufræðum frá Gautaborgarháskóla og starfaði áður m.a. sem framkvæmdastjóri Rannsóknastofnunar Háskólans á Akureyri og forstöðumaður Byggðarannsóknastofnunar Íslands.
Fyrstu greinarnar sem birtast í hinu nýja tímariti eru eftir þá Ágúst Einarsson, rektor og Bjarna Jónsson og Vífil Karlsson, dósenta við háskólann á Bifröst.

Senda á Facebook
Háskólinn á Bifröst | 311 Borgarnes | Sími: 433 3000 | Fax: 433 3001 | bifrost@bifrost.is | Afgreiðslutími 08:00 - 12:00 og 13:00 - 16:00 | Vefstjóri