Fréttir
7. desember 2006

Glitnir banki opnar skrifstofu í Shanghai og styrkir Bifrestinga

Kristján Pétur Kristjánsson með styrkinn góða
Glitnir banki opnaði skrifstofu í Shanghai fyrir skömmu, fyrstur íslenskra banka. Nemendum frá Bifröst sem stunda nám við Shanghai University var boðið að vera viðstaddir opnunina. Glitnir hefur, í samstarfi við Enex China, dótturfyrirtæki Enex í Reykjavík og Shaanxi Geothermal Energy Development Corporation, unnið að verkefni sem snýr að jarðhita. Í bænum Xian Yang hefur verið byggð hitaveita sem nýtir jarðvarma til að hita upp húsakynni 300.000 háskólanema en verkefnið er brautryðjandi á sviði jarðhita í Kína og byggir m.a. á íslensku hugviti.

Í opnunarhófinu í Shanghai afhenti Einar Sveinsson, stjórnarformaður Glitnisbanka, Kristjáni Pétri Kristjánssyni fulltrúa Bifrestinga í Shanghai 50.000 norskar krónur úr menningarsjóði bankans. Upphæðin er fararstyrkur 8 nemenda frá Bifröst sem munu halda til Xian Yang dagana 8. - 11. desember og kynna sér hina nýju hitaveitu.

Senda á Facebook
Háskólinn á Bifröst | 311 Borgarnes | Sími: 433 3000 | Fax: 433 3001 | bifrost@bifrost.is | Afgreiðslutími 08:00 - 12:00 og 13:00 - 16:00 | Vefstjóri