Föstudaginn 16. apríl kl. 13.00 stendur lögfræðideild Viðskiptaháskólans á Bifröst fyrir opinni ráðstefnu um tvískiptingu íslensks vinnumarkaðar. Ráðstefnan fer fram í Hriflu á Bifröst og er unnin í samstarfi við ASÍ, BSRB, SA og Starfsmannaskrifstofu fjármálaráðuneytis.
Íslenskum vinnumarkaði má í grundvallaratriðum skipta í tvennt, í almennan vinnumarkað og opinberan vinnumarkað. Reglur um réttarstöðu starfsmanna og atvinnurekenda er að verulegu leyti frábrugðin í þessum geirum. Sá skilsmunur er að hluta tilkominn af ástæðum sem eiga sér sögulegar skýringar. Mismunandi einkenni má einnig að hluta rekja til þess að á opinbera vinnumarkaðinum er atvinnurekandinn bundinn af reglum um meðferð opinbers valds.
Á undanförnum árum hefur nokkur umræða átt sér stað um tilgang þessarar tvískiptingar og þörf fyrir samræmingu. Með lagabreytingum hafa verið gerðar ráðstafanir til að stuðla að slíkri samræmingu. Deila má um hversu vel hafi til tekist. Fyrir Alþingi liggja nú tillögur í þessa veru.
Tilgangur ráðstefnunnar er að skoða ýmsar lögfræðilegar spurningar varðandi þessi einkenni íslensks vinnumarkaðar. Nánari afmörkun viðfangsefnis ráðstefnunnar má forma í kringum eftirfarandi:
- Megineinkenni hins tvískipta vinnumarkaðar: lýsing og greining
- Rökin á bak við ólíkar reglur, söguleg þróun, pólitískar hugmyndir o.fl.
- Mismunandi réttarstaða opinberra starfsmanna eftir því hvort þeir eru í almennum stéttarfélögum eða stéttarfélögum opinberra starfsmanna.
- Líklegar breytingar og þróun opinbers vinnumarkaðar
Dagskrá:
Kl. 13.00
Ingibjörg Þorsteinsdóttir, deildarforseti lögfræðideildar Viðskiptaháskólans á Bifröst setur ráðstefnuna.
Kl. 13.10 Tvískiptur vinnumarkaður, staða og þróun í ljósi dómafordæma
Ástráður Haraldsson, hrl. og dósent við lögfræðideild Viðskiptaháskólans á Bifröst
Kl. 13.45 Ríkið sem atvinnurekandi í ljósi grunnreglna stjórnsýsluréttar
Kristín Benediktsdóttir, aðstoðarmaður Hæstaréttardómara
Kl. 14.25 Tvískipting vinnumarkaðarins. Að hvaða marki er rétt að samræma?
Erna Guðmundsdóttir, hdl. lögfræðingur BSRB
Hlé
Kl. 15.10 Hið opinbera sem vinnuveitandi, yfirlit og framtíðarsýn
Þórhallur Vilhjálmsson,lögfræðingur Starfsmannaskrifstofu fjármálaráðuneytis
Kl. 15.50 Eru lögfræðileg eða félagspólitísk rök til þess að viðhalda tvískiptum vinnumarkaði?
Magnús Norðdahl, hrl. og lögfræðingur ASÍ
Kl. 16.10 Sjónarhorn atvinnulífsins - sambúðarvandi almenns og opinbers vinnumarkaðar. Hrafnhildur Stefánsdóttir, hrl. og yfirlögfræðingur SA
Hlé
Kl. 16.40 Pallborðsumræður með þátttöku fyrirlesaraundir stjórn Ingibjargar Þorsteinsdóttur
Kl. 17.30 Ráðstefnuslit og léttar veitingar.
Aðgangur er ókeypis og öllum heimill.