2. ágúst 2012
Spennandi störf í boði á Kaffi Bifröst
Hótel Bifröst í Borgarfirði óskar eftir að ráða kokk og þjón eða manneskju vana þjónustustörfum til starfa. Viðkomandi þurfa að geta hafið störf seinnipart ágústmánaðar. Unnið er á 2-2-3 vöktum.
Ýmis fríðindi fylgja starfinu; aðgangur að líkamsræktarstöð, heitum pottum og sauna, internettenging, sjónvarpsrásir um gervihnött, þvottahús o.fl. Möguleiki á herbergi eða stærra húsnæði. Stórbrotin náttúra allt í kring og golfvöllur eru í göngufæri.
Áhugasamir hafi samband við Guðrúnu Helgu
Sími: 4333050 / 4333051 GSM: 6959900 / 8482944
Netfang: kaffihus@bifrost.is