9. ágúst 2012
Útivist í boði Bifrastar - Skessuhorn 11. ágúst
Dagsetning: Laugardagur, 11. ágúst
Tímasetning: 09.00
Hæð: 963 m
Hækkun: ca. 900 m
Áætlaður heildartími: 8-9 klst.
Brottfararstaður: Horn í Skorradal
Erfiðleikastig: "4 skór"
Fararstjóri: Sigrún Hermannsdóttir
AÐGANGUR ÓKEYPIS EN ÞÁTTTAKENDUR FERÐAST Á EIGIN ÁBYRGÐ
Ferðatilhögun:
Göngunni á Skessuhorn er hægt að skipta í tvennt. Göngu AÐ Skessuhorni og göngunni Á Skessuhorn. Um margt svipar þessari göngu við gönguna að og á Baulu. Leiðin frá bíl og að fjallinu sjálfu er þægileg og við allra hæfi. Lítil raunhækkun og þægilegt land yfirferðar.
Þegar komið er að fjallinu sjálfu er hins vegar á grýttan brattann að sækja. Þegar upp er komið tekur við brúnabrölt sem endar á toppi vesturhliðar Skessuhorns. Þaðan er útsýnið stórfenglegt til allra átta!
Göngugarpar keyra að Horni í Skorradal þar sem gangan hefst. Þeir sem koma frá háskólanum geta sameinast í bíla kl 8.15 fyrir utan Samkaup.
Skemmtilegt að enda á ferð í Hreppslaug :-)
Fyrirspurnir sendist á: sigrun@bifrost.is
Verið velkomin!