2. ágúst 2012
Frá hugmynd að heimsenda - Kristín Eysteinsdóttir, leikstjóri
Eins og undanfarin sumur munum við bjóða uppá opna fyrirlestra á Bifröst á fimmtudögum klukkan 16.00 í Hriflu. Fyrirlestrarnir eru um klukkustundar langir og frekar óformlegir en nemendur eru hvattir til þess að mæta, spyrja spurninga og ræða málin. Þema fyrirlestranna er frumkvæði og frumkvöðlar, fundarstjóri er Njörður Sigurjónsson.
Í dag, fimmtudaginn 2. ágúst, mun Kristín Eysteinsdóttir leikstjóri lýsa ferlinu á bakvið góða leiksýningu en meðal sýninga sem hún hefur leikstýrt er Rústað, Fólkið í kjallaranum og Svar við bréfi Helgu.
