19. júlí 2012
Frá hugmynd að heimsenda - Rakel Garðarsdóttir
Eins og undanfarin sumur munum við bjóða uppá opna fyrirlestra á Bifröst á fimmtudögum klukkan 16.00 í Hriflu. Fyrirlestrarnir eru um klukkustundar langir og frekar óformlegir en nemendur eru hvattir til þess að mæta, spyrja spurninga og ræða málin. Þema fyrirlestranna er frumkvæði og frumkvöðlar, fundarstjóri er Njörður Sigurjónsson.
Í dag, fimmtudaginn 19. júlí, mun Rakel Garðarsdóttir framkvæmdarstjóri Vesturports segja frá galdrinum á bakvið velgengni leikhópsins.
