Fréttir
28. mars 2012

Nemendur stuðla að "Betri Bifröst"

Nemendur í námskeiðinu Forysta og stjórnun, sem er sameiginlegt námskeið í grunnnámi allra deilda, fengu það verkefni að beita aðferðum verkefnastjórnunar við að bæta umhverfi háskólaþorpsins í víðu samhengi. Undir fyrisögninni "Betri Bifröst" áttu nemendur að skipuleggja og framkvæma viðburði og verkefni sem hefðu áhrif á hegðun hóps fólks sem gætu haft samfélagslega jákvæð áhrif á háskólasamfélagið.

 

Dr. Njörður Sigurjónsson lektor, hvatti nemendur sína til að takast á við raunhæf verkefni sem hefðu í för með sér virk samskipti við starfsfólk skólans, aðra nemendur, nærsamfélag skólans og umhverfið. Útfærslu námskeiðsins vann Njörður með hliðsjón af áherslum skólans á sjálfbærni og samfélagsábyrgð.

 

Framkvæmdir og viðburðir fóru fram í byrjun mars en þriðjudaginn 13. mars kynntu nemendur verkefni sín, sem eru í eðlinu ólík og munu sum þeirra „lifa áfram" sem samfélagsleg bæting innan þorpsins.

 

Verkefnin sem unnin voru:

  1. Skipulagt nýtt námskeið í fjölmiðlafærni þar sem nemendur lærðu að gera sig gildandi í þjóðfélagsumræðu
  2. Drög lögð að „Heilsuhelgum" á Bifröst þar sem háskólaþorpið býður gesti til andlegrar og líkamlegrar upplyftingar
  3. Regnbogabíó. Barnabíó á sunnudegi, liður í að auka afþreyingu fyrir börn innan háskólaþorpsins
  4. Skiptibókamarkaður starfræktur fyrir nemendur
  5. Kynning á sjálfbærri þróun, náttúru- og umhverfisvernd í Borgarbyggð
  6. Græn Bifröst. 10 tilraunaheimili fengin í lið til að flokka sorp
  7. Samstarf við kvikmyndaklúbbinn Græna ljósið. Kvikmyndasýning skipulögð á Kaffi Bifröst
  8. Næring og námsgeta. Nemendur framleiddu og seldu „hollustunammi" á kaffihúsinu til að auka meðvitund um samhengi næringar og námsorku
  9. Gagnvirk nemendakennsla. Þróun á nýjum aðferðum við nám þar sem nemendur eru gerðir virkari
  10. Fatasöfnunarátak. Tengslum komið á við Rauða Kross Íslands sem skilaði samfélaginu söfnunargámi inní háskólaþorpið

 

Frábært framtak og kann skólinn nemendum og kennara þakkir fyrir.

Háskólinn á Bifröst | 311 Borgarnes | Sími: 433 3000 | Fax: 433 3001 | bifrost@bifrost.is | Afgreiðslutími 08:00 - 12:00 og 13:00 - 16:00 | Vefstjóri