Fréttir
21. febrúar 2012

Miðvikudagsfyrirlestur í Hriflu: Ragnhildur Bjarkadóttir

Næstkomandi miðvikudag, þann 22. febrúar, heldur Ragnhildur Bjarkadóttir fyrirlesturinn: „Köldustu gangsterarnir“ Samningahegðun Íslendinga á alþjóðavettvangi 1997- 2007“. Fyrirlesturinn hefst klukkan 12:30 og stendur til 13:15.

 

Með auknu frelsi í efnahagsstjórn á tíunda áratug 20. aldar, gerbreyttist íslenskt viðskiptalíf. Einkavæðing ríkisfyrirtækja, sérstaklega ríkisbankanna, hlutafélagavæðingu og vexti fjölmargra innlendra fyrirtækja varð til þess að ungir og framsæknir stjórnendur sóttu á erlend mið með háleita drauma. Útrásin þótti heppnast vel og voru stjórnendur taldir búa yfir einstökum hæfileikum og tileinka sér óvenjulega viðskiptahætti í samningaviðræðum, oft nefnd íslensku einkennin.  Sú hugmyndafræði hélt ekki vatni eftir hrunið  2008 og í augum margra breyttust forsvarsmenn fyrirtækjanna í skúrka í stað sögulegra samningamanna.

Ragnhildur hefur rannsakað samningahegðun og samningatækni íslenskra útrásarvíkinga á alþjóðavettvangi meðan útrásin stóð sem hæst. Hvernig nálguðust útrásarvíkingarnir samninga við útlendinga, hvaða gildi og hugmyndir komu þeir með að borðinu og hvernig mótaði þessi sjálfsmynd útrásina? Í hverju fólust "séríslensk" einkenni samningahegðunar útrásarvíkinganna?

 

Senda á Facebook
Háskólinn á Bifröst | 311 Borgarnes | Sími: 433 3000 | Fax: 433 3001 | bifrost@bifrost.is | Afgreiðslutími 08:00 - 12:00 og 13:00 - 16:00 | Vefstjóri