Fréttir
27. janúar 2012

Háskólinn á Bifröst markar sér stefnu um opinn aðgang

Háskólinn á Bifröst hefur sett sér það markmið að sem flestir geti notið afurða þess vísindastarfs sem unnið er innan skólans. Til þess að svo megi verða hafa starfsmenn samþykkt að birta fræðigreinar sínar í opnum aðgangi, nema til komi sérstakar aðstæður, annað hvort í gegnum tímarit sem gefin eru út í opnum aðgangi eða með safnvistun. Þá vill skólinn gera vísindagreinar ritaðar af starfsmönnum aðgengilegar og vista þær í opnum gagnagrunnum s.s. Skemmunni en þar eru lokaverkefni nemenda skólans nú þegar aðgengileg almenningi.

 

„Opinn aðgangur" (e. open access) er hugtak sem merkir að útgefið efni sem er afrakstur vísindastarfs, oftar en ekki kostað er af opinberu fé, háskólunum eða samkeppnissjóðum, er aðgengilegt öllum á rafrænu formi á Netinu. Yfirleitt er um að ræða ritrýndar greinar ritaðar af háskólamenntuðum fræðimönnum sem þiggja opinber laun eða styrki til þess að stunda rannsóknir sínar og fræðistörf, en almenningu þarf síðan oft að greiða sérstaklega fyrir að fá að lesa greinarnar í alþjóðlegum tímaritum. Með opnum aðgangi er reynt að tryggja að almenningur þurfi ekki að greiða þriðja aðila eða „aftur" fyrir vinnuna.

 

Með þessari ákvörðun er Háskólinn á Bifröst fyrstur íslenskra háskóla til þess að setja sér ákveðna stefnu um birtingar í opnum aðgangi, en margir af virtustu háskólum heims hafa farið þessa leið á undanförnum árum.

 

Hægt er að sjá stefnu skólans um opinn aðgang hér.

Senda á Facebook
Háskólinn á Bifröst | 311 Borgarnes | Sími: 433 3000 | Fax: 433 3001 | bifrost@bifrost.is | Afgreiðslutími 08:00 - 12:00 og 13:00 - 16:00 | Vefstjóri