Fréttir
9. janúar 2012

Útivist í boði Bifrastar

Á síðasta ári stóð Háskólinn á Bifröst fyrir fjalladagatali þar sem gengið var á nokkur fjöll í nágrenni skólans. Mikil ánægja var með þessar göngur og þátttaka með miklum ágætum. Í ár verður þessu því haldið áfram undir yfirskriftinni "Útivist í boði Bifrastar". Búið er að ákveða dagsetningarnar fyrir göngur og hægt er að nálgast þær upplýsingar hér (PDF skjal) .

 

Sumarið nálgast óðfluga og því um að gera að taka þessar dagsetningar frá. Allar ferðir verða auglýstar sérstaklega sem viðburðir á Facebook-síðu skólans og þátttakendur beðnir um að skrá sig.

 

Útivist í boði Bifrastar er frumkvæði Háskólans á Bifröst til fjallaferða og útivistar. Ferðirnar eru ætlaðar Bifrestingum, Hollvinum, sveitungum, vinum og öðrum velunnurum skólans. Ferðirnar eru þátttakendum að kostnaðarlausu, utan þess kostnaðar sem felst í nesti, akstri og búnaði.

Ef þú ert vanur fjallagarpur og hefur áhuga á að taka að þér fararstjórn þá máttu endilega senda línu á sigrun@bifrost.is

Athugið að allar dagsetningar eru birtar með fyrirvara um breytingar.

 

Senda á Facebook
Háskólinn á Bifröst | 311 Borgarnes | Sími: 433 3000 | Fax: 433 3001 | bifrost@bifrost.is | Afgreiðslutími 08:00 - 12:00 og 13:00 - 16:00 | Vefstjóri