15. nóvember 2010
Jólagjöfin í ár er lopapeysa
Á hverju ári gefur Rannsóknarsetur verslunarinnar út spá um jólaverslunina og af sama tilefni velur hópur valinkunnra neyslufrömuða jólagjöf ársins.
Þær forsendur sem hafðar voru að leiðarljósi við val á jólagjöfinni í ár voru þessar:
- Vara sem er vinsæl meðal neytenda
- Ný vara eða hefur vakið endurnýjaðan áhuga
- Vara sem selst vel
- Vara sem fellur vel að tíðarandanum
Eins og venjulega barst fjöldinn allur af hugmyndum að jólagjöf ársins. Að lokum fór þó svo að dómnefndin valdi íslenska lopapeysu sem jólagjöfina í ár.
Samkvæmt Rannsóknarsetri verslunarinnar verður jólaverslunin svipuð að magni til og fyrir síðustu jól. Veltan verður samt 4% meiri í krónum talið vegna verðhækkana sem orðið hafa frá síðasta ári. Jafnframt kemur fram að áætluð heildarvelta smásöluverslunar í nóvember og desember verði um 60 milljarðar króna og að hver landsmaður verji að meðaltali 39.500 kr vegna árstímans.