Fréttir
9. nóvember 2010

Bifrestingar á ferð og flugi

Tveir starfsmenn Háskólans á Bifröst eru á faraldsfæti þessa dagana. 

 

Kristín Ólafsdóttir, alþjóðafulltrúi,  er stödd í Frakklandi þar sem hún heldur fyrirlestur í 12 háskólum í París, Lille, Nantes, Bordeaux, Toulouse, Montpellier, Lyon og Marseilles.  Fyrirlesturinn ber heitið: “The International Business Person – a tangerine or an orange?”

 

Þá er Sigrún Lilja Einarsdóttir, sérfræðingur við Rannsóknamiðstöð Háskólans á Bifröst og doktorsnemi í félagsfræði við Exeter-háskóla í Englandi, stödd í Danmörku þessa dagana. 

Þar heldur hún gestafyrirlestra í þremur háskólum í Óðinsvéum og Álaborg.  Fyrirlestrar Sigrúnar bera heitið: The Beauty of Technical Imperfection: “Choral Member’s Perceptions on Aesthetic Issues in Performance” og “The Conductor: Musical director – or Simply a Time-Beater?”

 

Háskólinn á Bifröst | 311 Borgarnes | Sími: 433 3000 | Fax: 433 3001 | bifrost@bifrost.is | Afgreiðslutími 08:00 - 12:00 og 13:00 - 16:00 | Vefstjóri