Fréttir
23. ágúst 2010

Hugmyndasmiðjan 2010 fyrir frumkvöðla

Í september mun Hugmyndahús háskólanna hleypa af stokkunum  Hugmyndasmiðjunni 2010 fyrir frumkvöðla sem ganga með hugmynd í maganum eða eru komnir skammt á veg og vilja koma henni í framkvæmd. Hér verður spyrnt saman skapandi greinum, tækni, vísindum og viðskiptum því allir eru velkomnir. í Hugmyndasmiðjunni vinna þátttakendur að því að ramma inn sína hugmynd og í lok smiðjunnar eiga þeir að vera í stakk búnir til að hefja vinnslu viðskiptaáætlunar.
Hugmyndasmiðjan verður sjósett 2. september kl. 17.15 og stendur í 6 vikur. Fyrirlestrar verða haldnir á fimmtudögum kl. 17.15 og vinnusmiðjur á laugardögum milli kl. 10.00 og 13.00. Í lokin verður úthlutað 6 hvatningarverðlaunum að upphæð 500.000 kr. hver til þeirra hugmyndasmiða sem þykja hafa unnið best úr sinni hugmynd.
 
Fréttatilkynninguna er hægt að sjá hér:

Senda á Facebook
Háskólinn á Bifröst | 311 Borgarnes | Sími: 433 3000 | Fax: 433 3001 | bifrost@bifrost.is | Afgreiðslutími 08:00 - 12:00 og 13:00 - 16:00 | Vefstjóri