4. júní 2010
Háskólinn á Bifröst og Foreldrafélag Háskólans á Bifröst kynna: Börn og umhverfi
Börn og umhverfi
Námskeið fyrir börn 10 ára og eldri sem gæta yngri barna. Á námskeiðinu er farið í ýmsa þætti er varða umgengni og framkomu við börn, aga, umönnun og hollar lífsvenjur, leiki og leikföng. Einnig er lögð áhersla á slysavarnir og algengar slysahættur í umhverfinu.
|
Markmið |
Að þátttakenda læri að umgangast börn á ýmsum aldri, þekki helstu slysavarnir og gildi þeirra og geti brugðist við algengum áverkum og veikindum barna. |
|
Viðfangsefni |
Þroski barna Samskipti Leikir og leikföng Slysaforvarnir Slys í heimahúsum Skyndihjálp |
Námskeiðið verður haldið mánudaginn 7. júní milli kl. 09.00-13.00 og þriðjudaginn 8. júní milli kl. 16.00-19.00 hér á Bifröst.
Fyrri daginn verður kennd skyndihjálp og slysavarnir og er leiðbeinandi Elva Pétursdóttir frá Rauða Krossinum í Borganesi, en seinni daginn verður rennt yfir nokkra skynsama þætti er varða umönnun barna. Leiðbeinandi þar er Ingibjörg Einarsdóttir leikskólakennari á Hraunborg.
Öll börn, 10 ára og eldri sem áhuga hafa eru velkomin í boði Háskólans og Foreldrafélagsins!
Nauðsynlegt er að skrá barnið til þátttöku með svarpósti á sigrun@bifrost.is