Háskólinn á Bifröst tekur þátt í tímabundnu átaksverkefni á vegum Félags –og tryggingamálaráðuneytisins og Vinnumálastofnunar. Þeir sem geta sótt um eru þeir sem eru á atvinnuleysisskrá með bótarétt og námsmenn milli anna og eða skólastiga.
Störfin sem í boði eru á Bifröst koma fram á vef Vinnumálastofnunar www.vmst.is og eru stöðugildin alls 24.
Ráðningartími er 1 - 3 mánuðir.
Hér er hægt að sjá nánar hvaða störf eru í boði:
Taka skal fram að hægt verður að sækja um til 21. maí þótt fram komi á vefnum að umsóknarfrestur sé 19. maí.