28. apríl 2010
Ráðstefna í þjóðfélagsfræðum 7. og 8. maí
Fjórða ráðstefnan um íslenska þjóðfélagsfræði verður haldin í Háskólanum á Bifröst 7.-8. maí næstkomandi, en hún hefur áður verið haldin í Háskólanum á Akureyri og Háskólanum á Hólum. Ráðstefnan verður fjölbreytt að vanda með framlögum félagsfræðinga, mannfræðinga, stjórnmálafræðinga, heimspekinga, lögfræðinga, viðskiptafræðinga, og sagnfræðinga auk fræðimanna á tengdum sviðum. Ráðstefnunni er ætlað að skapa fræðilegan og faglegan umræðuvettvang um þjóðfélagsfræði í víðum skilningi. Þar gefst tækifæri til að kynna rannsóknir og koma þeim á framfæri og taka þátt í umræðum um það sem efst er á baugi hérlendis á sviði þjóðfélagsfræða.
Meðal efnis á ráðstefnunni má nefna:
-
Stjórnmál, þjóðríkið og lýðræði
-
Íslensk og alþjóðleg menning
-
Fjármál og viðskipti
-
Efnahagshrunið; orsök og afleiðing
-
Siðferði í viðskiptum og í opinberu lífi
-
Viðskipti og stjórnun
-
Ferðamál
-
Jafnréttismál og kynjafræði
-
Markaðsmál
-
Fjölmenning og samfélag
-
Samgöngur og samgöngubætur
-
Kyn og ofbeldi
-
Byggðaþróun
-
Heilsa og lífsgæði
Dagskrá og skiptingu í málstofur má finna hér.
Frekari upplýsingar um ráðstefnuna má finna hér.