Fréttir
27. apríl 2010

Ráðstefna Háskólanna um skýrslu RNA

Háskólarnir á Akureyri, Bifröst og í Reykjavík héldu ráðstefnu helgina 24.-25. apríl helgaða nýútkominn Skýrslu Rannsóknarnefndar Alþingis. Á ráðstefnunni leiðtuðust sérfræðingar skólanna við að svara þeim spurningum sem skýrslan vekur.

 

Ráðstefnan var haldin tvisvar. Fyrri daginn í húsakynnum HR í Vatnsmýri, seinni daginn í Sólborg, húsnæði Háskólans á Akureyri. Undirbúningsfundur hennar var haldinn á Bifröst dagana 15. og 16. apríl.

 

Ráðstefnunni var skipt í sex málstofur og í hverri þeirra var fjallað um afmarkaðan þátt hrunsins. Málstofunum stýrðu: Ágúst Einarsson, rektor Háskólans á Bifröst, Bryndís Hlöðversdóttir, aðstoðarrektor Háskólans á Bifröst, Hans Kristján Guðmundsson deildarforseti viðskipta- og raunvísindasviðs Háskólans á Akureyri og Ragnhildur Helgadóttir, prófessor við lagadeild Háskólans í Reykjavík.

 

I
Bankarnir: Hvernig störfuðu bankarnir? Hvernig útveguðu þeir fé og hvernig lánuðu þeir út fé? Hvernig má skýra helstu ákvarðanir stjórnenda þeirra? Af hverju réðust þær? Einkenndist stefnumótun bankanna af ofmetnaði?

 

a)      Hvers vegna náðu bankarnir til sín svona miklu fjármagni og hvernig? Fjármögnun og útlán bankanna. Guðrún Johnsen, lektor við Háskólann í Reykjavík.  Power point

 

b)      Ofmetnaður, dramb. Hvað fólst í íslensku leiðinni? Svanborg Sigmarsdóttir, stundakennari við Háskólann á Bifröst. Power point

 

c)       Stjórnunarhættir bankanna og "varnarleysi" almennra hluthafa. Stefán Kalmansson, aðjúnkt við Háskólann á Bifröst. PDF

 

II
Hagstjórn: Hvaða mat er hægt að leggja á gæði hagstjórnar í undanfara hrunsins? Hvernig sinntu ríkið og Seðlabankinn hlutverki sínu og ábyrgð? Stöðugleiki og eftirlit á fjármálamarkaði.

 

a)      Hugmyndafræði. Hver var hún og áhrif hennar? Hagstjórn – ríkisfjármál, peningastefna. Helgi Bergs, lektor við Háskólann á Akureyri.

 

b)      Fjármálastöðugleiki og eftirlit með fjármálamörkuðum – hvað brást? Friðrik Már Baldursson, prófessor við Háskólann í Reykjavík.

 

c)       „Ykkar bankakerfi er þannig að það er varla hægt að bjarga því.“ Hanna Katrín Friðriksson, stundakennari við Háskólann á Bifröst og Háskólann í Reykjavík.

 

III
Ákvarðanir: Hvernig voru þær ákvarðanir sem skiptu sköpum í aðdraganda hrunsins teknar? Hvernig breyttust valdahlutföll og valdastrúktúr í samfélaginu við vöxt banka og viðskiptalífs? Hvernig er hægt að skýra pólitískar ákvarðanir sem teknar eru jafnvel þó ljóst sé að þær þjóna ekki þeim tilgangi sem þær eiga að þjóna? Stjórnmálasiðferði. Lýðræði.

 

a)      Hvernig er hægt að skýra rangar ákvarðanir og læra af þeim? Jón Ólafsson, prófessor við Háskólann á Bifröst. PDF

 

b)      Hver hafði völd og hver réði hverju? Ágúst Þór Árnason, aðjúnkt við Háskólann á Akureyri.

 

c)      Yfirburðaþjóðin og umsátrið: áhrif þjóðernishugmynda á ákvarðanir í íslensku samfélagi. Eiríkur Bergmann Einarsson, dósent við Háskólann á Bifröst. PDF


IV
Hlutverk og ábyrgð fagstétta: Var faglegum sjónarmiðum varpað fyrir róða í aðdraganda hrunsins? Samfélagslegt hlutverk fagfólks og háskólafólks. Hver var staða fjölmiðla? Hvernig tengdust einkahagsmunir og almannahagsmunir?

 

a)      Hvað er að vera fagstétt? Sigurður Kristinsson, dósent við Háskólann á Akureyri. Power point

 

b)      Háskólar, hugmyndafræði og hagsmunir. Njörður Sigurjónsson, lektor við Háskólann á Bifröst. PDFPower point

 

c)       Fjölmiðlar, staða þeirra og hlutverk. Birgir Guðmundsson, dósent við Háskólann á Akureyri.


V
Völd og ábyrgð hjá hinu opinbera: Hvernig var háttað eftirliti með stjórnsýslunni? Hvert var hlutverk laga, þar á meðal lagasetningar EES. Réði íslensk stjórnsýsla ekki við EES löggjöf? Að hve miklu leyti má sjá galla í löggjöf sem orsakavald í hruninu?

 

a)      EES og gæði lagasetningar. Páll Þórhallsson, aðjúnkt við Háskólann í Reykjavík.

 

b)      Valdmörk, valdheimildir og framkvæmd. Margrét Vala Kristjánsdóttir, lektor við Háskólann í Reykjavík.

 

c)       Takmörk laga og viðhorf til þeirra. Ingibjörg Þorsteinsdóttir, dósent við Háskólann á Bifröst. PDF

 

VI
Uppgjör: Hvernig á að gera upp við fortíðina? Getur réttlætið náð fram að ganga? Hvernig á að meðhöndla þá sem ábyrgðina bera, pólitíska, siðferðilega og lagalega? Hverjum þarf að bæta tjón? Hver situr á endanum uppi með tjónið?

 

a)      Hvað þarf að gera til að setja punkt. Refsiábyrgð. Sigurður Tómas Magnússon, prófessor við Háskólann í Reykjavík.

 

b)      Hver á að bera tjónið?  Guðmundur Sigurðsson, prófessor við Háskólann í Reykjavík.

 

c)       Sannleikur og réttlæti: Tilkall til gæða, tjón og almannaheill. Guðmundur Heiðar Frímannsson, prófessor við Háskólann á Akureyri. Power point

Senda á Facebook
Háskólinn á Bifröst | 311 Borgarnes | Sími: 433 3000 | Fax: 433 3001 | bifrost@bifrost.is | Afgreiðslutími 08:00 - 12:00 og 13:00 - 16:00 | Vefstjóri