Fréttir
17. mars 2010

Yfirlýsing rektora háskólanna

 

 

Rektorar íslenskra háskóla lýsa yfir þungum áhyggjum af fyrirætlunum stjórnvalda um niðurskurð á fjárveitingum til háskólanáms. Á þessu ári og því síðasta hafa íslenskir háskólar tekið á sig skerðingu sem nemur 8,5 – 15% af  heildarfjárveitingum og samkvæmt upplýsingum frá menntamálaráðuneyti er gert ráð fyrir 25 – 30% niðurskurði til viðbótar á næstu tveimur til þremur árum. Rektorar telja augljóst að stórlega skert fjárframlög geri að engu uppbyggingu síðustu ára og veiki háskólakerfið einmitt nú þegar brýnt er að beita því til viðreisnar og endurbyggingar.

 

Opinber framlög til háskólastigsins sem hlutfall af landsframleiðslu eru samkvæmt upplýsingum OECD (Education at a Glance 2009) mikið lægri hér á Íslandi en á hinum Norðurlöndunum, eða sem nemur 35 – 65%. Til þess að ná sambærilegum framlögum við það sem þar gerist þyrfti að hækka þau hér um sem nemur um 7 – 13 milljörðum á ári. Þetta sýnir að íslenskir háskólar hafa fram að þessu boðið fram menntun á fjölbreyttum sviðum fyrir umtalsvert minna fé en háskólarnir á hinum Norðurlöndunum.

 

Einföldun háskólakerfisins með stórauknu samstarfi og meiri verkaskiptinu, sem jafnvel getur leitt til sameiningar stofnana, er úrræði sem margir telja að geti skilað mestum sparnaði. Rektorar háskólanna taka virkan þátt í vinnu um þessi mál, enda sameiginlegt markmið þeirra að tryggja gæði háskólamenntunar á Íslandi. Þeir leggja áherslu á að raunverulegir kostir verði settir fram og fengin samstaða innan háskólasamfélagsins um á hvaða forsendum verði byggt við mat á kostunum. Ávinningur af nýrri skipan háskóla er hins vegar langt frá því að vera í hendi og því beinlínis misleiðandi að reikna hann til tekna fyrir skólana nú þegar niðurskurðarhnífnum er beitt.

 

Háskólarnir gegna lykilhlutverki í uppbyggingu og framþróunar á öllum sviðum atvinnulífs og menningar. Með því að virkja þá miklu þekkingu og kunnáttu sem býr innan háskólanna má skapa ný verðmæti, efla gagnrýna hugsun og auka víðsýni. Þetta er ennþá augljósara þegar ríkir kreppuástand eins og hér, og benda rektorar á þá uppbyggingu háskólamenntunar og rannsókna sem varð burðarás í endurreisn Finnlands eftir kreppuna þar í byrjun síðasta áratugar.

 

Rektorar skora á íslensku þjóðina að nýta sér kraft háskólanna til endurreisnar samfélagsins, snúa vörn í sókn, og horfa á vandamálin sem tækifæri til frumlegra lausna. Þjóðin verður að horfa fram úr vandanum, virkja mannauðinn, hvetja til sköpunar, og sækja fram samhent og einbeitt til bjartari tíma. Háskólarnir verða  í fararbroddi þeirrar sóknar.

         

Ari Kristinn Jónsson, rektor Háskólans í Reykjavík


Ágúst Einarsson, rektor Háskólans á Bifröst


Ágúst Sigurðsson, rektor Landbúnaðarháskóla Íslands


Hjálmar H. Ragnarsson, rektor Listaháskóla Íslands


Kristín Ingólfsdóttir, rektor Háskóla Íslands


Skúli Skúlason, rektor Háskólans á Hólum


Stefán B. Sigurðsson, rektor Háskólans á Akureyri

 

Senda á Facebook
Háskólinn á Bifröst | 311 Borgarnes | Sími: 433 3000 | Fax: 433 3001 | bifrost@bifrost.is | Afgreiðslutími 08:00 - 12:00 og 13:00 - 16:00 | Vefstjóri