Fréttir
6. febrúar 2012 03:57

Fyrirlestur á miðvikudag: Katrín Oddsdóttir

Katrín Oddsdóttir, héraðsdómslögmaður heldur fyrirlestur í Hriflu nk. miðvikudag, 8. febrúar, kl. 12:00. Fyrirlesturinn ber heitið:
„Það var löglegt! Hefur ákæruvaldi verið misbeitt í pólitískum tilgangi á Íslandi?"

 

meira...
5. febrúar 2012 09:51

Upptaka frá útskrift og ræðu rektors

Síðastliðinn laugardag voru um 60 nemendur útskrifaðir frá Háskólanum á Bifröst, úr grunnámi í viðskiptafræði, viðskiptalögfræði og HHS (heimspeki, hagfræði og stjórnmálafræði) ásamt meistaranemum af öllum sviðum skólans og þá voru einnig útskrifaðir nemendur úr diplómanámi í verslunarstjórnun. Í útskriftarræðu sinni talaði Bryndís Hlöðversdóttir rektor um akademískt frelsi og sagði að það væri hugtak sem háskólar þurfa að hafa í heiðri, en í því felst m.a. að akademískir starfsmenn geti tjáð sig og stundað rannsóknir sínar óháð eftirliti eða ritskoðun stjórnvalda eða þeirra stofnana sem þeir starfa hjá. Því til stuðnings nefndi Bryndís nýlegt frumvarp til háskólalaga þar sem kæmi fram að háskólum sé skylt að virða fræðilegt sjálfstæði starfsmanna sinna. Bryndís kom inn á þjónustusamning við menntamálaráðuneytið til 5 ára sem skólinn skrifaði nýverið undir. Að lokum sagði hún frá þátttöku Háskólans á Bifröst í alþjóðlegu verkefni á vettvangi Sameinuðu þjóðanna um átak til menntunar ábyrgra stjórnenda er stóra viðfangsefnið sem við glímum við núna, en með því setti skólinn sér það markmið að stjórnendanámið okkar sé nám sem hvetji til ábyrgrar stjórnunar.

 

meira...
2. febrúar 2012 11:07

Útskrift á Bifröst á laugardaginn

Næstkomandi laugardag, þann 4. febrúar verður útskrift við Háskólann á Bifröst. Athöfnin hefst kl. 14.00 og verður í Hriflu. Um 60 nemendur útskrifast úr grunnnámi og meistaranámi í háskóladeildum, ásamt nemendum í diplómanámi í verslunarstjórnun. Athöfnin tekur um klukkustund og að henni lokinni verður boðið til móttöku í Hátíðarsal skólans.

 

meira...
Háskólinn á Bifröst | 311 Borgarnes | Sími: 433 3000 | Fax: 433 3001 | bifrost@bifrost.is | Afgreiðslutími 08:00 - 12:00 og 13:00 - 16:00 | Vefstjóri