Til þess að nemandi geti notfært sér VPN tengingar við Háskólann á Bifröst, þarf Netstjóri að veita heimild á netþjóninum til tengingarinnar. Forritið hér að neðan setur bara tenginguna upp á tölvu notandans. ATH. Til þess að hægt sé að tengjast með henni, þarf Netstjóri að vera búinn að veita aðganginn.
Þeir nemendur sem þurfa aðgang að gagnasöfnum þegar þeir eru utan háskólasvæðisins vinsamlegast sækið um slíkan aðgang hjá netstjóra: netstjori@bifrost.is
Smellið hér: VPNbif til að nálgast forrit sem setur upp sjálfkrafa upp VPN tengingu á tölvum
Þar sem ekki er forrit til þess að setja sjálfvirk upp VPN tengingar fyrir Apple Mac, þá eru hér leiðbeiningar með myndum, og við þökkum Davíð Fjölni Ármannssyni fyrir að útbúa þær fyrir okkur. Sjá hér
Forritið er þjappað og það þarf að afþjappa það (með t.d. winrar) og keyra síðan upp VPNbif.exe sem er í möppunni, afgangurinn kemur sjálfkrafa. Þegar netstjóri hefur veitt aðgengið, þá er nóg að tvísmella á táknið fyrir tenginguna, skrá inn notendanafn og lykilorð ( það þarf ekki að skrá domain ) og þá ætti að koma staðfesting á tengingu við VPN netþjóninn.
Þeir nemendur sem þegar hafa VPN tengingu frá Háskólanum á Bifröst, eru vinsamlegast beðnir um að eyða henni út í tölvunum hjá sér og setja þessa tengingu upp í staðinn.