Misserisverkefni

 

Hvað eru misserisverkefni?

 

Nemendur á málsvörn
Misserisverkefni eru sjálfstæð hópverkefni sem reyna á mun fleiri þætti en venjuleg vikuleg verkefni. Sérstök einkunn er gefin fyrir misserisverkefnin og kemur hún fram sem sjálfstætt námssvið á prófskírteinum. Gert er ráð fyrir að hvert misserisverkefni krefjist þriggja vikna vinnu nemenda. Fyrstu tvær vikurnar fara í vinnslu verkefnisins en sú þriðja í málsvarnir og endurbætur.

Tilgangur misserisverkefna er margþættur. Þau veita nemendum tækifæri til að dýpka skilning sinn á afmörkuðu sviði og öðlast þannig meiri sérfræðiþekkingu en ella. Oft eru misserisverkefni unnin í nánum tengslum við fyrirtæki og stofnanir og veita þannig innsýn í viðfangsefni og vandamál atvinnulífsins. Þau undirstrika hvernig hægt er að nota námsefnið til grundvallar við að skoða, skýra og koma með ábendingar eða tillögur til úrbóta. Þau gefa kost á að læra af aðstæðum og aðilum í atvinnulífinu og dýpka skilning á námsefninu. Síðast en ekki síst gegna misserisverkefnin mikilvægu hlutverki við að þjálfa nemendur í að beita viðurkenndum vísindalegum aðferðum við rannsókn eða lausn hagnýtra og fræðilegra viðfangsefna.

Gott misserisverkefni ber þess vott að hópurinn:

  • Hafi valið verðugt viðfangsefni til skoðunar og afmarkað það með skýrum hætti.
  • Hafi tileinkað sér viðeigandi fræðileg vinnubrögð og gagnrýna hugsun sem birtast í  framsetningu, úrvinnslu upplýsinga og ályktunum sem settar eru fram.
  • Fari með heimildir á vandaðan og heiðarlegan hátt.
  • Leitist við að öll framsetning, munnleg og skrifleg, sé eins vönduð og kostur er.

 

  

   

 

  

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Háskólinn á Bifröst | 311 Borgarnes | Sími: 433 3000 | Fax: 433 3001 | bifrost@bifrost.is | Afgreiðslutími 08:00 - 12:00 og 13:00 - 16:00 | Vefstjóri