Starfsreglur varðandi öryggisvörslu og áminningar
1. gr.
Öryggisvörður gengur um svæðið frá kl. 23:30 og sér til þess að íbúar verði ekki fyrir ónæði vegna hávaða. Hann gerir athugasemdir við hávaða frá íbúum að eigin frumkvæði auk þess að sinna útköllum vegna ónæðis. Eftir kl. 24.00 og til kl. 07.00 má enga háreysti hafa, er raskað geti svefnfriði manna í öðrum íbúðum. Séu veislur haldnar af meiriháttar tilefni, er þó heimilt að færa til upphaf fyrrnefnds tímabils í samráði við íbúa þeirra íbúða sem næst liggja. Ætíð skal tilkynnt um slíkar veislur til sviðsstjóra húsnæðis með góðum fyrirvara. Sími öryggisvarðar er 695 9901.
2. gr.
Verði öryggisvörður var við hávaða sem raskar ró annarra íbúa byrjar hann á að ræða við húsráðanda og gera honum grein fyrir að ónæðið sé óásættanlegt. Húsráðanda er gerð grein fyrir því að stöðvi hann ekki gleðskapinn muni hann fá áminningu, til þess fær hann 10 mínútna frest. Að þeim fresti liðnum kemur öryggisvörður aftur á staðinn og aðgætir hvort farið hafi verið að fyrri fyrirmælum. Hafi það ekki verið gert fær viðkomandi áminningu og er gefinn kostur á að senda gesti samstundis heim. Verði hann ekki við því er kallað eftir aðstoð lögreglu.
3. gr.
Komi til þess að kalla þurfi til lögreglu glatar viðkomandi öllum áunnum punktum til forgangs við úthlutun húsnæðis Nemendagarða, auk þess að fá áminninguna.
4. gr.
Hafi öryggisvörður tvisvar sinnum þurft að hafa afskipti af gleðskap í sama húsnæði vegna kvörtunar/kvartana og húsráðandi farið að tilmælum öryggisvarðar sbr. reglu 2, þó ekki sé um sama kvöld að ræða, gefur slíkt einnig tilefni til áminningar.
5. gr.
Öryggisvörður skilar skriflegri skýrslu til sviðsstjóra húsnæðissviðs vegna allra afskipta sem hann hefur af íbúum svæðisins þar sem fram kemur hvort viðkomandi atvik réttlæti áminningu eða ekki.
6. gr.
Tvær áminningar valda undantekningarlaust tafarlausum brottrekstri úr húsnæði Nemendagarða. Viðkomandi getur sótt um að komast í húsnæði á Nemendagörðum að þremur mánuðum liðnum og metur þá úthlutunarnefnd hvort viðkomandi fái að flytja aftur inn á Nemendagarða.
7. gr.
Þar sem fleiri en einn leigjandi deila sömu íbúð, bera allir sameiginlega ábyrgð verði vart við ónæði frá henni. Sé ástæða til áminningar og enginn íbúa vill gangast við að hafa borið ábyrgð á gleðskapnum þá bera allir íbúar sameiginlega ábyrgð og fá allir áminningu. Undantekning frá því er því aðeins að íbúi hafi sannanlega ekki verið í íbúðinni þegar ónæðið átti sér stað.
Verði verulegur misbrestur á umgengni í og við hið leigða húsnæði fá leigutakar/leigutaki senda áskorun um að bæta úr innan 15 daga. Ef því er ekki sinnt fá leigutakar/leigutaki áminningu, heimilt er að rifta húsaleigusamningi í slíkum tilfellum.
Áminningar eru einnig veittar fyrir að halda hunda/ketti í leigðu einstaklingshúsnæði, Hamragörðum og í Sjónarhóli sem er leigt út á vegum Háskólans á Bifröst og Nemendagarða Háskólans á Bifröst.
8. gr.
Áminning er bundin við einstakling og fylgir honum þó skipt sé um húsnæði. Áminning gildir í eitt ár frá því hún er veitt, en fyrnist að þeim tíma liðnum.