Gjaldskrá þessi gildir fyrir ýmsa tilfallandi þjónustu við nemendur sem leigja húsnæði í Nemendagörðum Háskólans á Bifröst og er ekki innifalin í leigugjaldi íbúðanna.
Neyðarþjónusta
| 1. |
Neyðaropnun milli kl. 8:00 - 17:00 |
1500 |
| 2. |
Neyðaropnun milli kl. 17:00 - 22:00 |
2500 |
| 3. |
Neyðaropnun milli kl. 22:00 - 8:00 um helgar og á frídögum |
3500 |
| 4. |
Ýmis viðvik á kostnað leigjenda s.s. stíflulosun, peruskipti: |
|
|
Lágmarksútkall: |
2000 |
|
Almennt tímagjald umfram lágmarksútkall |
|
|
Á dagvinnutíma, milli 8-12 og 13-17 s. 695 9908: |
1500 |
|
Utan dagvinnutíma (háð viðveru starfsfólks) s. 695 9901: |
2500 |
| |
Sími 695 9901 er jafnfram sími öryggisvarðar sem er á vakt frá
17-08 virka daga og frá 17 á föstudegi til 08 á mánudegi.
Öryggisvörður tekur við tilkynningum vegna ónæðis. |
|
Úttektir
Úttekt á húsnæði á að fara fram á dagvinnutíma. Hringja skal fyrir klukkan 11:00 í síma 695 8908 til að panta tíma. Leigutakar fá tvo daga í flutning milli einstaklingsíbúða og þrjá til fjóra daga ef um er að ræða fjölskylduíbúðir. Skil án úttektar ef allt er í lagi kosta krónur 5000 og ef það þarf að þrífa aukalega bætist sá kostnaður við. Þrif á kostnað leigjenda kosta krónur 3500 á klukkustund. Úttekt á húsnæði utan dagvinnutíma kostar krónur 5000 og er háð því að starfsfólk geti tekið hana að sér. Ef hlífðardýnum er ekki skilað við úttekt þá verður leigutaki rukkaður um 3000 krónur. Ef ruslafötu vantar er rukkað um kr. 1000. Ef leigt er með húsbúnaði og það vantar húsbúnað eða húsbúnaður er skemmdur er rukkað samkvæmt kostnaðarverði á markaði hverju sinni.
Ef handklæði eða lín vantar eða hefur orðið fyrir skemmdum í uppábúnum herbergjum á vinnuhelgum þá verður leigutaki rukkaður um 2000 kr.
Önnur þjónusta og gjaldtaka
| 1. |
Aukalyklar: |
1000 kr. stk. |
| 2. |
Aukarúm: |
1000. kr. á mánuði |
| 3. |
Flutningsgjald milli húsnæðis: |
10.000 kr. |
|
|
|
Aukalyklar:
Aukalyklar fást á Háskólaskrifstofu, kvittað er fyrir móttöku og rukkað er með næstu leigu.
Aukarúm:
Hringja skal í starfsmenn húsnæðissviðs í s. 695 9908 ef sækja skal um aukarúm. Viðkomandi mælir sér mót við starfsmenn húsnæðissviðs og sækir rúmið sjálfur í kjallara Hamragarða í húsgagnageymslu. Leigutakar sem vilja skila rúmi/rúmum og nota eigið þurfa að senda póst á husnaedi@bifrost.is og fá til þess heimild og skuldbinda sig þá til að setja rúm frá skólanum aftur inn við brottför, s. 695 9908.
Flutningsgjald er ekki innheimt þegar flutt er úr Skógarseli í aðrar 3ja herbergja íbúðir í Nemendagörðum. Barnlaust fólk sem á von á barni og fjölskyldufólk sem á rétt á að flytja úr 2ja herbergja í þriggja herbergja íbúð eða þriggja herbergja í fjögurra herbergja íbúð er undanþegið flutningsgjaldi.
Gildir frá 1. janúar 2010
Sandra Björk Jóhannsdóttir, Umsjónarmaður húsnæðis.