Íbúðarhúsnæði

 

Fjölskyldu- og einstaklingsíbúðir

Háskólaþorpið á Bifröst

Háskólaþorpið á Bifröst

 Fjölskylduíbúðir eru ýmist tveggja, þriggja eða fjögurra herbergja íbúðir á einni eða tveimur hæðum. Í svokölluðum Kotum sem eru á tveimur hæðum eru t.d. forstofa, geymsla, eldhús og stofa. Á efri hæð eru 2 - 3 herbergi og baðherbergi með sturtu. Á baðinu er tenging fyrir þvottavél og þar er einnig hægt að koma fyrir þurrkara. Íbúðirnar eru ýmist leigðar út með eða án húsbúnaðar og húsgagna.

 

Í Sjónarhóli, sem er þriggja hæða blokk, eru tveggja, þriggja og fjögurra herbergja íbúðir á einni hæð. Þar eru 1-3 svefnherbergi. Eldhús og stofa í sameiginlegu rými, baðherbergi með sturtu (3ja herb.)  eða baðkari/sturtu (2ja og 4ra herb.) og tengi er fyrir þvottavélar, hægt er að koma fyrir þurrkara. Geymsla er í hverri íbúð. Ísskápur fylgir ekki með 3ja eða 4ra herbergja íbúðum í Sjónarhóli nema leigt sé með húsgögnum.

 

Einstaklingsíbúðir eru sambýli 3-6 einstaklinga sem hver hefur sitt eigið herbergi með sér baðherbergi. Í sameiginlegu rými eru eldhús, setkrókur, forstofa og þvottahús. Íbúðirnar eru leigðar út með húsgögnum. Eldhúsáhöld, örbylgjuofn og frystiskápur fylgja einnig hverri íbúð. Hægt er að fá síma á hvert herbergi. Þvottavél og þurrkari fylgja sumum íbúðunum ef ekki þá er þvottaaðstaða fyrir alla í þvottahúsi háskólans í kjallara Hamragarða.

 

Einstaklingar eða pör geta sótt um fjölskylduíbúðir ef nægt framboð er fyrir hendi, úthlutunarreglur gilda í þeim efnum. Í slíkum tilfellum er ekki sjálfgefið að hægt sé að framlengja húsaleigusamning.


Í húsnæði skólans er sameiginlegt þvottahús fyrir alla nemendur og starfsmenn skólans. Þar eru 6 þvottavélar, þurrkarar, snúrur, straubretti og straujárn. Fylgja ber settum reglum sem eru aðgengilegar í þvottahúsi skólans í kjallara Hamragarða.

 
 
 

 

  

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Háskólinn á Bifröst | 311 Borgarnes | Sími: 433 3000 | Fax: 433 3001 | bifrost@bifrost.is | Afgreiðslutími 08:00 - 12:00 og 13:00 - 16:00 | Vefstjóri