Um gagnasöfn
Sum gagnasöfn eru tilvísunarsöfn, þar sem vísað er í greinar birtar í ritrýndum tímaritum. Önnur eru s.k. heildartextasöfn þar sem allur textinn er birtur og er þá annað hvort opinn aðgangur í textana eða keyptur aðgangur að þeim.
Aðgangur að staðarneti Háskólans á Bifröst með VPN
Starfsmenn og nemendur Háskólans á Bifröst geta tengst staðarneti skólans utanfrá í gegnum VPN (Virtual Private Network). Þannig er hægt að nálgast rafræn gögn (tímarit og gagnasöfn) í áskrift bókasafnsins sem annars eru einungis aðgengileg á tölvum á staðarneti háskólans. Leiðbeiningar fást hjá netstjóra : netstjori@bifrost.is.
Leitir Leitargátt sem leitar samtímis í Gegni, Skemmunni, Hirslunni, Tímarit o.fl. rafrænum söfnum.
Gegnir - Bókasafnskerfi sem hýsir samskrá íslenskra bókasafna. Þar er jafnframt rafrænn aðgangur að íslenskum og erlendum tímaritum, ef þau eru í samskránni.
Rafræn tímarit
Hér er aðgangur í gegnum SFX-krækjukerfið að öllum erlendum tímaritum sem eru í áskrift í Landsaðgangi og hjá Háskólanum á Bifröst
Íslensk blöð: Morgunblaðið, Viðskiptablaðið og Lögbirtingablaðið. Lykilorð fást í afgreiðslu bókasafnsins.
hvar?is - Landsaðgangur að tímaritum, bæði tilvísunarsöfnum og heildartextum.
Skemman - Lokaritgerðir frá Háskólanum á Bifröst, Háskóla Íslands, Háskólanum á Akureyri, Háskólanum í Reykjavík, Listaháskólanum og Landbúnaðarháskóla Íslands á Hvanneyri er hægt að nálgast í rafrænum aðgangi í Skemmunni. Lokaritgerðir Háskólans á Bifröst, sem eru eldri en frá 2009 eru aðeins aðgengilegar í pappírsformi á bókasafni skólans.
Google Schoolar - Google Scholar leitar eingöngu í vísindaefni á netinu; ritrýndum greinum, ritgerðum, bókum, sérprenti, útdráttum og skýrslum í öllum helstu fræðigreinum.
Google Books - Google Books finnur upplýsingar um bækur og heildartexta þeirra sé hann tiltækur (höfundaréttur útrunninn).
Opinn aðgangur (íslensk síða)
Markmið þessarar síðu er að kynna og veita upplýsingar um opinn aðgang að vísindalegri útgáfu (e. open access). Á síðunni verða einnig fréttir um gang mála á Íslandi, á hinum Norðurlöndunum og víðar. Hér er að finna tengla við ýmsar síður sem snerta opinn aðgang ásamt greinum um opinn aðgang á íslensku og öðrum málum.
Opinn aðgangur
Fleiri og fleiri háskólar og vísindastofnanir velja að birta rannsóknarefni sitt á eigin vefsíðum og veita opnu aðgengi að því án milligöngu annarra. Það er kallaður Opinn aðgangur (Open acess). Oft er slík rafræn birting texta unnin í samvinnu fleiri háskóla eða rannsóknarstofnana, t.d.
Directory of open Access Journals (DOAJ) og OpenDOAR. UNESCO hefur opnað The Global Open Access Portal
Gagnasöfn í áskrift bókasafns Háskólans á Bifröst eru:
Erlend: JSTOR, Karnov, Lovdata, OECDi.Library.
Aðgangur er opinn frá tölvum skólans.
Aðgangsorð að lokuðum þáttum Lovdata fæst á bókasafninu.
(Sjá meira um þau og önnur undir Gagna- og tímaritasöfn A-Ö )
Uppfært nóvember 2011