|
Sigurbjörn Einarsson, sviðsstjóri í viðskiptafræði sigurbjorn@bifrost.is
Sigurbjörn er viðskiptafræðingur frá Háskóla Íslands með Cand. Oecon gráðu frá árinu 1998. Sigurbjörn býr yfir mikilli þekkingu á fjárstýringu, fjármálastjórnun, fjárfestingu og eignastýringu. Hann hefur starfað sem framkvæmdastjóri MP Sjóða hf. hjá HF Eimskipafélagi Íslands síðar Burðarási hf. og Straumi-Burðarás hf. Hann hefur jafnframt verið stundakennari við Háskólann á Bifröst og Háskóla Íslands undanfarin ár.
|
 |
Dr. Ágúst Einarsson, prófessor
agust@bifrost.is
MS-próf í rekstrarhagfræði frá Háskólanum í Hamborg, Þýskalandi. Framhaldsnám við háskólana í Hamborg og Kiel. Doktorspróf í hagfræði frá Háskólanum í Hamborg. Hefur unnið sem framkvæmdastjóri fyrirtækja í sjávarútvegi, var alþingismaður og hefur setið í fjölmörgum stjórnum og ráðum. Prófessor í Háskóla Íslands 1990-2007. Prófessor og rektor við Háskólann á Bifröst frá 2007. Stundaði rannsóknir við Siena University, Stanford University, New York University og Copenhagen Business School. Höfundur 18 bóka auk fjölmargra greina í bókum, tímaritum, blöðum og á Netinu um efnahagsmál, hagfræði, menningu, stjórnmál og sjávarútvegsmál. Rannsóknir einkum á sviði rekstrarhagfræði, sjávarútvegs, lítilla og meðalstórra fyrirtækja, smásöluverslunar, tónlistar og menningarhagfræði.
|
|
|
Bryndís Björnsdóttir, háskólakennari
bryndisbj@bifrost.is
M.Sc próf í stjórnun markaðssamskipta (Marketing Communication Management) frá Viðskiptaháskólanum í Kaupmannahöfn (CBS) 2006 og B.sc. frá viðskiptafræðideild Háskóla Íslands 2004. Hefur starfað sem markaðs- og birtingaráðgjafi hjá Auglýsingamiðlun frá árinu 2006 og unnið þar náið með mörgum og fjölbreyttum íslenskum fyrirtækjum að markaðsstarfi sínu bæði hér á landi og erlendis. Bryndís hefur verið stundakennari í markaðsfræði frá árinu 2010 og starfar nú í hálfu starfi háskólakennara við Háskólann á Bifröst.
|
|

|
Einar Svansson , lektor
einarsv@bifrost.is
MSc í stjórnun og stefnumótum og í markaðsfræðum og alþjóðaviðskiptum frá Háskóla Íslands. Hefur auk þess lokið gráðum á sviði ferðaþjónustu og sjávarútvegs. Hefur undanfarin ár kennt við Háskólann á Bifröst og Háskóla Íslands og unnið rannsóknarverkefni hjá Viðskiptafræðistofnun HÍ. Fyrirlestrar og erindi á innlendum og erlendum vettvangi. Stjórnunarráðgjafi hjá ParX frá árinu 2006. Margvísleg stjórnunarstörf, m.a. forstjóri í sjávarútvegsgeiranum í 15 ár. Seta í mörgum stjórnum, nefndum og ráðum, var í fulltrúaráði hjá Samtökum atvinnulífsins og varaformaður Samtaka fiskvinnslustöðvanna, stjórnarmaður og stjórnarformaður í fjölmörgum fyrirtækjum. Sérþekking á sviði starfsmannastjórnunar og þjónustustjórnunar.
|
 |
Emil B. Karlsson
emil@bifrost.is
Forstöðumaður Rannsóknaseturs verslunarinnar. Emil er fil. kand. frá Háskólanum í Lundi í Svíþjóð og B.Sc. í viðskiptafræði. Emil stundaði kennslu um árabil, var kynningarstjóri Iðntæknistofnunar og forstöðumaður Evrópumiðstöðvar stofnunarinnar í 12 ár. Hann gerðist starfsmaður SVÞ-Samtaka verslunar og þjónustu 2001 og sinnti meðal annars mennta- og fræðslumálum á opinberum vettvangi fyrir SVÞ og Samtök atvinnulífsins. Emil var um nokkurra ára skeið fulltrúi Íslands í rannsókna- og nýsköpunaráætlunum ESB og hefur unnið að ýmsum verkefnum fyrir framkvæmdastjórn ESB. Hann situr í fagráði Tækniþróunarsjóðs Rannís og er matsmaður í Leonardo da Vinci starfsmenntaáætluninni.
|
 |
Guðmundur Ólafsson, lektor
lobbi@bifrost.is
Cand. oecon. próf í hagfræði frá Háskóla Íslands, stundaði einnig nám í heimspeki og málvísindum við sama skóla. Stærðfræði við HÍ og Tekhnologititeskií Universitet imeni Kallinina í Leningrad og rússneska við Podgotovitelni Odel. Kenndi fyrst stærðfræði í framhaldsskólum en síðan hagfræði, upplýsingatækni, tölfræði og stærðfræði við Háskóla Íslands, Tækniskóla Íslands og Háskólann á Bifröst. Fjármálastjóri Hagvirkis, sat í stjórn SVR, sat í áfengisvarnarnefnd Reykjavíkur.
|
 |
Jón Freyr Jóhannsson, aðjúnkt
jonfreyr@bifrost.is
BSc í tölvunarfræði frá Háskóla Íslands og MBA frá Háskólanum í Reykjavík.
Jón Freyr hefur kennt við Háskólann á Bifröst frá vormisseri 2008, þar áður kennari við Háskólann í Reykjavík 2000 -2008, áður stundakennari við Háskóla Íslands, Tækniháskólann og Endurmenntunarstofnun HÍ frá 1990. Stýrði hugbúnaðardeild Ríkisspítala 1998 - 2000 og var forstöðumaður hjá Skýrr 1991-1995.
Jón Freyr starfaði til margra ára við ráðgjöf á sviði stjórnunar, þjónustu og upplýsingatækni með sérstakri áherslu á viðfangsefni gæðastjórnunar.
Sérþekking á sviði greiningar, hönnunar og gerðar upplýsingakerfa, gagnasafnsfræða, rafrænna viðskipta og rafrænnar stjórnsýslu.
Sérstakt áherslusvið Jóns Freys er framþróun á notkun upplýsingatækni við kennslu og miðlun kennsluefnis.
|
 |
Kári Joensen, aðjúnkt
kari@bifrost.is
MSc í hagfræði frá Háskóla Íslands og BS í iðnaðarverkfræði frá sama skóla. Kári hefur sinnt kennslu við Háskólann á Bifröst undanfarin ár og starfar sem hagfræðingur við Rannsóknasetur verslunarinnar. Störf hans við rannsóknasetrið eru fyrst og fremst á sviði hagnýtra rannsókna fyrir þjónustugreinar hérlendis og söfnun, úrvinnsla og birting tölfræðiupplýsinga um stöðu verslunar. Sérþekking Kára er fyrst og fremst á sviði verðmælinga og verðvísitalna en hann hefur einnig komið að rannsóknum á sviðum eins og heilsuhagfræði og verkefnum tengdum gengisáhættu.
|
 |
Stefán Kalmansson, aðjúnkt
stefank@bifrost.is
Cand. Ocon. frá viðskiptadeild Háskóla Íslands árið 1987. Cand. Merc. frá Viðskiptaháskólanum í Árósum árið 1992. Starfsmaður Eimskips á árunum 1987 til 1999, sem aðalbókari, fulltrúi í hagdeild og forstöðumaður fjárhagsdeildar. Bæjarstjóri í Borgarbyggð frá 1999 til 2002. Fjármálastjóri Háskólans á Bifröst frá 2002 til 2006 og jafnframt aðjúnkt við lagadeild. Aðjúnkt við viðskiptadeild Háskólans á Bifröst frá 1. september 2006 og deildarforseti frá júní 2010 til febrúar 2012. Sérþekking Stefáns er á sviði fjármála fyrirtækja en auk þess hefur hann kennt fög eins og hagfræði og haglýsingu. Stefán hefur setið í stjórnum margra fyrirtækja og stofnana.
|
 |
Stefán Svavarsson, prófessor
stefansv@bifrost.is
Stefán Svavarsson prófessor í reikningshaldi og endurskoðun lauk prófi í viðskiptafræði með reikningshald og endurskoðun sem aðalfag frá Ríkisháskólanum í Ohio 1970. Starfaði sem endurskoðandi um tveggja ára skeið í Bandaríkjunum að loknu námi. Lauk prófum til löggildingar í endurskoðun 1975. Var sama ár skipaður lektor í endurskoðun við Háskóla Íslands og starfaði þar nærfellt óslitið í 30 ár og hlaut þar kennsluverðlaun ársins 2002. Vann samhliða kennslu sem endurskoðandi og hefur unnið fyrir fyrirtæki og stofnanir í flestum atvinnugreinum. Hefur unnið síðustu ár hjá Landsvirkjun, Seðlabanka Íslands og Háskólanum í Reykjavík, og er þar í hlutastarfi sem forstöðumaður meistaranáms í reikningshaldi og endurskoðun. Stefán hefur á starfsferlinum verið í ýmsum nefndum og stjórnum, m.a. formaður reikningsskilaráðs, formaður prófnefndar endurskoðenda og formaður stjórnar Fjármálaeftirlitsins. Hann hefur skrifað fjölmargar greinar í innlend tímarit og blöð um reikningshald, endurskoðun og skattamál, og ennfremur skrifað kafla í erlendar bækur um reikningsskilagerð á Íslandi.
|
|