Í BS námi í viðskiptafræði eru öll helstu svið fjármála, stjórnunar, markaðsmála og viðskipta kennd. Nemendum býðst að taka námið á íslensku eða ensku með innlendum og erlendum samnemendum. Námið er alhliða viðskiptanám sem ætlað er að búa nemendur undir ábyrgðar-, forystu- og stjórnunarstörf í innlendu og alþjóðlegu samkeppnisumhverfi.
Rík áhersla er lögð á að nemendur geti annars vegar unnið sjálfstætt að úrlausn krefjandi verkefna og hins vegar unnið í hópi samnemenda að rannsóknum og úrlausn stærri verkefna, kynnt þau og lagt í dóm kennara og samnemenda. Lögð er áhersla á gagnrýna hugsun og hagnýta tengingu við raunhæf og raunveruleg verkefni sem eru fleiri og umfangsmeiri en við nokkurn annan háskóla hér á landi. Þetta gerir að verkum að uppbygging BS náms í viðskiptafræði á Bifröst er frábrugðin því sem þekkist hér á landi og gerir útskrifaða nemendur færa til að takast á við krefjandi verkefni atvinnulífsins.
Fjölbreytt viðfangsefni, umræður og samstarf nemenda og kennara tryggja nemendum fyrsta flokks undirbúning fyrir ábyrgðarstöður í íslensku atvinnulífi. Kennarar við deildina eru góð blanda af öflugum rannsakendum og sérfræðingum úr atvinnulífinu sem miðla nemendum af víðtækri reynslu sinni og þekkingu.
Viltu ná forskoti?
Viðskiptadeild Háskólans á Bifröst varð fyrst til þess hér á landi að bjóða nemendum starfsnám sem tengist þeirra sérsviði, hvort heldur um er að ræða á sviði markaðsmála, fjármála eða stjórnunar. Eins býður deildin nemendum sínum upp á markvissa þjálfun í framkomu á fundum, í ræðustóli og fjölmiðlum með 8 vikna námskeiði þar sem sérfræðingar leiðbeina nemendum. Þar fá nemendur þjálfun í því að skrifa greinar, flytja ræður og koma fram í fjölmiðlum. Þetta veitir nemendum ótvírætt forskot í samkeppni um störf í atvinnulífinu að lokinni útskrift auk þess sem nemendur hafa þá þegar eflt tengslanet sitt.
Fjölbreytt val og alþjóðleiki
BS nám í viðskiptadeild í staðnámi er kennt á íslensku og ensku. Hluti íslensku námslínunnar er samkenndur með ensku línunni og eru því einstök námskeið kennd á ensku. Nemendur fá þannig tækifæri til þess að styrkja enskukunnáttu sína í töluðu og rituðu máli auk þess sem meginhluti kennsluefnis er á ensku. Nemendum á 4. - 6. önn stendur til boða að stunda hluta af náminu við erlenda háskóla og undanfarin ár hafa um 40% nemenda skólans nýtt sér þann möguleika. Háskólinn á Bifröst er aðili að Erasmus samstarfi evrópskra háskóla og er í samstarfi um skiptinám við yfir 100 háskóla víða um heim.
Uppbygging námsins
Í staðnáminu eru þrjár annir, haustönn 15 vikur, vorönn 15 vikur og sumarönn 9 vikur. Fyrstu 11 vikur haustannar eru helgaðar námskeiðum. Mikið er lagt upp úr persónulegri kennslu og samstarfi nemenda og kennara. Kennsluhættir eru í stöðugri þróun með það að markmiði að auðga námið með því að virkja nemendur í gagnrýnni hugsun og þjálfa þá í úrlausnum verkefna. Sérstaða í kennsluháttum Bifrastar felast meðal annars í svokölluðum misserisverkefnum sem unnin eru í 4-6 manna hópum. Verkefnin eru oft unnin í samvinnu við fyrirtæki, sveitarstjórnir, opinberar stofnanir og aðra aðila utan skólans og eru varin fyrir dómnefnd tveggja kennara auk hópi nemenda. Mörg þessara verkefna hafa vakið athygli á landsvísu og sum hafa orðið grunnur að stofnun fyrirtækja útskrifaðra nemenda, auk þess sem fjölmargir Bifrestingar hafa með vinnslu þessara verkefna öðlast sambönd og traust sem hefur tryggt þeim atvinnu að námi loknu.
Nám til BS gráðu í viðskiptafræði er opið þeim sem lokið hafa stúdentsprófi eða sambærilegri menntun t.d. úr frumgreinadeild Háskólans á Bifröst.
