Leikskólinn Hraunborg í Borgarbyggð
 |
| Á Hraunborg |
Hjallastefnan ehf. rekur leikskólann Hraunborg á Bifröst, samkvæmt þjónustusamningi við Borgarbyggð. Um það bil 55 börn eru á Hraunborg. Flest börn á leikskólanum eru í heilsdagsvistun. Þó er boðið er uppá sveigjanlegan vistunartíma og ýmsir nýta sér það.
Í Hraunborg er unnið samkvæmt hugmyndafræði og starfsramma Hjallastefnunnar þar sem jafnrétti, jákvæður agi, opið leikefni, kærleikur og gleði er haft sem leiðarljós. Hjallastefnuna er hægt er að kynna sér frekar á www.hjalli.is
Leikskólinn þjónar öllum íbúum sveitarfélagsins þó flestir foreldrar séu nemendur háskólans.
Leikskólastarfsemi almennt krefst mikillar skipulagningar og margþætts undirbúnings. Sérstaða Hraunborgar er að á hverju hausti fyllist leikskólinn af nýjum börnum. Til að reyna að mæta vaxandi eftirspurn eftir þjónustunni er mikilvægt að hafa með góðum fyrirvara yfirlit yfir fjölda umsókna. Nýir íbúar á Bifröst þurfa að sækja um leikskólavist fyrir börn sín. Umsóknareyðublöð má finna á heimasíðu Hraunborgar.
Leikskólastjóri er Bára Tómasdóttir. Starfsmenn Hraunborgar eru 9. Netfang skólans er hraunborg@hjalli.is og heimasíðu skólans er að finna hér: http://www.hjalli.is/hraunborg/ Síminn á Hraunborg er 4350077.
Umsóknum um leikskólavist skal skila til: Leikskólastjóra, Leikskólanum Hraunborg, 311 Borgarnes eða með rafrænum hætti í gegnum heimasíðu leikskólans.