Umsókn um skólavist við Háskólann á Bifröst skal innihalda:
Í fyrsta lagi:
Umsóknareyðublað sem fyllt er út með rafrænum hætti. Formið sem um ræðir tengist nemendaskráningarkerfi skólans beint og grunnupplýsingar sem þar er að finna eru fengnar úr þjóðskrá.
Í öðru lagi:
Persónulegt bréf til deildarforseta. (Má senda rafrænt til viðkomandi deildarforseta, umsjónarmanns frumgreinadeildar og símenntunar, sjá netföng neðar á síðu).
Afrit prófskírteina
Starfsferilsskrá (Má senda rafrænt til viðkomandi deildarforseta og umsjónarmanns FGD, sjá netföng neðar á síðu)
Stafræn mynd í góðri upplausn
(Umsækjendur um meistaranám sem útskrifaðir eru með BS próf frá Bifröst þurfa eingöngu að senda inn umsóknareyðublað).
Deildarforsetar og umsjónarmenn námsbrauta
Viðskiptadeild: Stefán Kalmansson, deildarforseti; stefank@bifrost.is
Viðskiptadeild í fjarnámi: Guðrún Björg Aðalsteinsdóttir, umsjónarmaður, gudrunbjorg@bifrost.is
Félagsvísindadeild: Jón Ólafsson, deildarforseti; jonolafs@bifrost.is
Lagadeild: Ingibjörg Þorsteinsdóttir, deildarforseti; ingibjorg@bifrost.is
Meistaranám: Maj Britt Hjördís Briem; majb@bifrost.is
Frumgreinadeild: María Einarsdóttir, umsjónarmaður; mariae@bifrost.is
Símenntun: Geirlaug Jóhannsdóttir, umsjónarmaður, geirlaug@bifrost.is
Afgreiðsla umsókna fer fram jafnóðum og umsóknir berast. Umsækjendur eru hvattir til að sækja um sem fyrst til að auka líkur á inntöku.