Rekstrarnám í fjarnámi fyrir konur
Háskólinn á Bifröst býður upp á rekstrarnám í fjarnámi fyrir konur sem hafa áhuga á að bæta rekstrarþekkingu sína. Máttur kvenna er 11 vikna námskeið sem hefst með vinnuhelgi á Bifröst. Kennsla fer svo fram í fjarnámi og geta þátttakendur hlustað á fyrirlestra á netinu og unnið verkefni hvenær sem þeim hentar. Náminu lýkur með vinnuhelgi og formlegri útskrift.
Engar sérstakar forkröfur eru gerðar varðandi fyrra nám. Þátttökugjald er 115.000 kr.
Innifalið í verðinu eru öll námsgögn og 2 vinnuhelgar með gistingu og fæði.
Næsta námskeið hefst með vinnuhelgi á Bifröst 20.-21. september 2013. Umsóknarfrestur er til 15. ágúst.


Markmið
Eitt af aðalmarkmiðum Háskólans á Bifröst er að efla og styrkja íslenskt atvinnulíf og samfélag með því að veita nemendum framúrskarandi fræðslu og þjálfun á þeim sviðum sem skólinn sérhæfir sig á.
Háskólinn á Bifröst leggur mikla áherslu á gott samstarf við nærumhverfi sitt og tengingu við atvinnulífið. Algengt er að konur reki eða séu í forsvari fyrir þjónustufyrirtæki á landsbyggðinni. Ferðaþjónusta og verslun eru gott dæmi um það. Margar hafa þessar konur áratuga reynslu af fyrirtækjarekstri. Á fjölmörgum smærri stöðum eru fyrirtæki þeirra kjölfestan í þeirri einkareknu þjónustu sem íbúunum stendur til boða og er alger forsenda þess að gera byggðirnar samkeppnishæfar og halda í íbúa. Mikilvægt er fyrir uppbyggingu efnahagslífs þjóðarinnar að sköpunarmáttur kvenna á landsbyggðinni sé nýttur.
Markmiðin með Mætti kvenna eru:

|
| Útskriftarhópur í Mætti kvenna I að vori 2010 |
Kennslukerfi Háskólans á Bifröst
Fjarnám á Bifröst byggir á kennslukerfi sem heitir MySchool. Það er hægt að nálgast hvar sem er í gegnum Internetið. Í MySchool á hvert námskeið sitt svæði þar sem fyrirlestar frá kennurum og glærur eru aðgengilegar. Verkefnaskil og endurgjöf frá kennurum fara einnig fram í gegnum kennslukerfið. Nemendur geta með þessum hætti haft vinnu sína á einum stað, yfirfarna með athugasemdum. Á fyrstu vinnuhelginni er nemendum kennt að nota kennslukerfið MyScool sem er mjög notendavænt.
Nánari upplýsingar um Mátt kvenna veitir verkefnastjóri símenntunar, Geirlaug Jóhannsdóttir, í síma 433 3015 eða með tölvupósti: geirlaug@bifrost.is.