Diplómanám í verslunarstjórnun - fjarnám

 

Háskólinn á Bifröst býður upp á diplómanám í verslunarstjórnun sem er 3ja anna starfstengt fjarnám. Markmið námsins er að auka hæfni og þekkingu starfsfólks sem vinnur við verslun og þjónustu. Að námi loknu útskrifast nemendur með diplómapróf í verslunarstjórnun.

 

 

Nú þegar hafa um 200 nemendur útskrifast úr diplómanámi í verslunarstjórnun.

Nýr hópur nemenda hefur nám á vorönn 2012 og hefst kennsla 9. janúar. Umsóknarfrestur er til 20. desember.

  

Umsókinni þarf að fylgja starfsferilskrá, afrit af prófskríteinum fyrra náms og persónulegt bréf (1/2 - 1 A4 síða þar sem fram koma markmið með náminu, lýsing á fyrri reynslu).

 

Námið kostar kr. 160.000 á önn, samtals kr. 480.000. Innifalið í því er gistnig og fæði á 3 vinnuhelgum á hverri önn.

Starfsmenntasjóður verslunar- og skrifstofufólks (VR) veitir styrki til 75% niðurgreiðslu á skólagjöldum. Atvinnuleitendur geta einnig sótt um 75% styrk fyrir skólagjöldum samkvæmt heimasíðu VR. (ath. þó er styrkur háður stigaeign í sjóðnum).

 

 

Uppbygging námsins 

Fjarnám hentar fólki sem búsett er um allt land. Námið skiptist í bóklegan hluta, sem fram fer á fjarnámsvef skólans, og verklegan hluta, sem stundaður er á viðkomandi vinnustað. Bóklegi hlutinn byggist upp á fyrirlestrum sem nemendur geta hlustað á í tölvu hvenær sem þeim hentar og einnig hlaðið niður í Ipod.

 

Gera má ráð fyrir að nemendur þurfi að verja u.þ.b. 20 klst. á viku í fjarnámið við að hlusta á fyrirlestra og leysa verkefni. Einnig munu nemendur verja 3 helgum á hverri önn við verkefnavinnu á Bifröst og er bæði gisting og fæði á vinnuhelgum innifalið í skólagjöldum. Vinnuhelgarnar standa frá kl. 13 á föstudögum til kl. 16 á laugardögum.

 

Forsenda þess að hefja nám er að viðkomandi hafi náð 18 ára aldri, búi yfir a.m.k. eins árs reynslu af verslunarstörfum og hafi gert námssamning við verslun.

  

  • Hér er að finna  námssamning sem umsækjandi fyllir út í samvinnu við viðkomandi vinnuveitanda. 

 

Diplómanám í verslunarstjórnun er að hluta til metið inn í frumgreinadeild Háskólans á Bifröst (upplýsingatækni og íslenska). Nemendur geta sótt um inngöngu í frumgreinadeild að loknu diplómanámi í verslunarstjórnun. Þannig er unnt að ljúka ígildi stúdentsprófs með því að bæta við sig áfögnum og útskrifast úr frumgreinadeild.

 

 

 

Verklegt nám á vinnustað

Í verklega náminu er markmiðið að nemendur öðlist yfirsýn yfir hin fjölbreyttu viðfangsefni verslunarstjórans. Þættir verklega námsins eru settir fram í sérstakri námsferilsbók sem nemandinn fær afhenta í upphafi náms. Framvinda verklega námsins er skráð í námsferilsskrána til staðfestingar því að nemandi hafi uppfyllt tilskildar kröfur.

 

Diplómanám í verslunarstjórnun hlaut Starfsmenntaverðlaunin árið 2004 í flokki skóla og fagaðila. Verðlaunin eru hugsuð sem hvatning fyrir aðila sem þykja vera að vinna framúrskarandi starf á sviði starfsmenntunar.

 

Ummæli nemanda í diplómanámi í verslunarstjórnun.

 

Nánari upplýsingar veitir verkefnastjóri símenntunar:

Geirlaug Jóhannsdóttir geirlaug@bifrost.is og í síma 433-3015.

 

 

Einnig er hægt að nálgast upplýsingar: 

hjá SVÞ-Samtökum verslunar og þjónustu
í síma 511 3000 og með tölvupósti:
svth@svth.is eða www.svth.is

 

 

 

 

         

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 Hvað segja          

nemendur?         

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Háskólinn á Bifröst | 311 Borgarnes | Sími: 433 3000 | Fax: 433 3001 | bifrost@bifrost.is | Afgreiðslutími 08:00 - 12:00 og 13:00 - 16:00 | Vefstjóri