Bjartir dagar á Bifröst
Háskólinn á Bifröst býður upp á fræðsludagskrá fyrir aldurshópinn 60+ þar sem áhersla verður lögð á fræðslu, skemmtun og útivist í einstöku umhverfi skólans í Borgarfirði.
Markmiðið er að þátttakendur njóti fjölbreyttrar dagskrár með fræðsluerindum og ráðgjöf um ýmis brýn málefni líðandi stundar.
Boðið verður upp á fyrirlestra á degi hverjum þar sem færustu sérfræðingar halda erindi:
- Jón Ólafsson, forseti félagsvísindadeildar fjallar um andóf, ágreining og áróður í íslensku samfélagi.
- Ágúst Einarsson, prófessor, fjallar um menningu sem atvinnugrein.
- Eiríkur Bergmann Einarsson, dósent, fjallar um störf stjórnlagaráðs.
- Helga Mogensen, matgæðingur og jógakennari, fjallar um heilsusamlegt líferni og mataræði.
Boðið verður upp á skoðunarferð um Borgarfjörð þar sem m.a. Reykholt og Landnámssetur Íslands verða heimsótt.
Mikil áhersla verður lögð á fjölbreytta hreyfingu og útivist þar sem allir ættu að finna eitthvað við sitt hæfi, s.s. göngutúra, morgunleikfimi og golf á golfvellinum Glanna.
Gunnar Þórðarson, tónskáld, mun troða upp á kvöldvöku og síðasta kvöldið verður haldinn harmónikkudansleikur í hátíðarsal skólans. Þátttakendum stendur til boða að nýta alla þjónustu háskólans, m.a. bókasafn, líkamsræktaraðstöðu, pottasvæði og
kaffihús.
Nánar um dagskrá Bjartra daga á Bifröst.
Innifalið í þátttökugjöldum er gisting í stúdíóíbúðum í uppábúnum rúmum og fullt fæði ásamt aðgangi að allri dagskrá og skoðunarferðum.
Verð fyrir 1 í herbergi er kr. 65.000 fyrir 4 daga.
Verð fyrir 2 í herbergi er kr. 120.000 fyrir 4 daga.
Áhugasamir eru hvattir til að kynna sér möguleika á styrkjum hjá fræðslusjóðum stéttarfélaganna.
Skráning fer fram í síma 433-3000 og með því að smella hér.
Allar nánari upplýsingar veitir Geirlaug Jóhannsdóttir í síma 433-3015 / 893-8960 og með tölvupósti geirlaug@bifrost.is .