Prisma - nýtt diplómanám

 

 

 

Mikil aðsókn í Prisma! 

 

 

Yfir 90 umsóknir  bárust í Prisma að þessu sinni. um fimmtíu efnilegir nemendur hefja námið að þessu sinni, sem hefst 1. febrúar næstkomandi kl:12:30 á Fríkirkjuvegi 11 í Reykjavík. Námið stendur yfir í 8 vikur og lýkur með hátíðlegri útskrift þann 3. apríl 2010.  

Prisma er nýtt þverfaglegt diplómanám sem hentar þeim sem vilja skoða samtímann og skapa sér framtíð á gagnrýninn og skapandi hátt. Listaháskóli Íslands og Háskólinn á Bifröst skipulögðu námið í samvinnu við ReykjavíkurAkademíuna og til þessa hafa um það bil 90 nemendur útskrifast með diplóma í Prisma.

 

Aðsókn er mikil í Prisma námið í vetur en um það bil 80 hafa sótt um námið. Valið verður úr hópi umsækjenda á næstu dögum og vikum. Að sögn Hrundar Gunnsteinsdóttur, forstöðukonu Prisma, er hópur umsækjenda sem fyrr fjölbreyttur,  hvað aldur, reynslu og menntun varðar. Mikilvægt er að umsækjendur sendi öll gögn sem beðið er um svo hægt sé að fjalla um umsókn hvers og eins. „Við tökum ennþá við umsóknum í Prisma og ég vil hvetja alla sem hafa áhuga á að vera með að sækja um sem allra fyrst. Mér sýnist á hópi umsækjenda að nemendahópurinn verður ekki síður hafsjór reynslu og þekkingar en námið sjálft og fyrirlesarar.”  

Nemendur í Prisma útskrifast með 16 eininga (ECTS) diplómagráðu. Námið stendur yfir samfleytt í 8 vikur og skal gera ráð fyrir viðverðu alla virka daga frá 9.00-16.00. Hér fyrir neðan er hægt að nálgast námslýsingu frá því í fyrra sem helst óbreytt, að undanskilinni stundaskrá sem mun taka einhverjum breytingum. Stundaskránna í námslýsingu má hins vegar skoða til viðmiðunar fyrir kennsluna í vetur. Stundaskrá fyrir vorönn 2010 verður ekki birt fyrr en í upphafi námsins.

Kennt verður á Fríkirkjuveg 11, 101 Reykjavík, og skólagjöld verða 195.000 krónur, en allt lesefni er innifalið í þeirri upphæð. Umsækjendum er bent á að sækja um námsstyrk til niðurgreiðslu á skólagjöldum frá stéttar- og fagfélögum og hjá Vinnumálastofnun. Vinnumálastofnun heimilar nemendum á atvinnuleysisbótum að stunda námið og halda bótum að uppfylltum ákveðnum skilyrðum og er þá gerður um það námssamningur. Umsækjendum um námið er bent á að snúa sér til ráðgjafa stofnunarinnar til að kanna málið.

 Dæmi um svör nemenda úr kennslukönnun í október 2009:

„Prisma er mögnuð verkfærataska"
„er að stofna fyrirtæki og láta draum rætast"
„heimurinn hefur opnast og tækifærin eru óþrjótandi"
„tjái mig skýrar og framkvæmi - finnst ég geta allt!"
„hef fundið nýjar og óvenjulegar leiðir til að framkvæma og hugsa"
„eftir Prisma stóð ég uppi sem sigurvegari gagnvart sjálfri mér"
„allt annað sjónarhorn á heiminn og sjálfan mig"
„hagnýt þekking fyrir líf og vinnu"

 

Prisma er nýtt þverfaglegt diplómanám sem Listaháskóli Íslands og Háskólinn á Bifröst skipulögðu í samvinnu við ReykjavíkurAkademíuna. Eftirspurn eftir Prisma hefur verið mikil frá því námið hóf göngu sína 2. febrúar sl. Útskrifaðir hafa verið tveir nemendahópar til þessa með 12 og 16 eininga (ECTS) diplómagráður. Útskriftarnemar eru um það bil 90 talsins úr hinum ýmsu geirum, s.s. viðskiptum, þjónustu, myndlist, arkitektúr, leiklist, fjármálageira, stjórnunar- og menntastörfum, heilbrigðisgeira og svona mætti áfram telja. Skilyrði fyrir inngöngu er stúdentspróf eða jafngildi þess og hafa nemendur verið á aldursbilinu 19-67 ára.

Prisma var sett á laggirnar sem viðbrögð Listaháskólans og Háskólans á Bifröst við því ástandi sem skapaðist hér á landi í kjölfar bankahruns. Námið hefur vakið athygli hér heima og erlendis enda er um nýsköpun í menntun að ræða.  Fjöldi hugmynda og spennandi verkefna hafa sprottið upp í náminu og verið hrint í framkvæmd. 

Prisma námið nýtist sérstaklega þeim einstaklingum sem vilja horfa gagnrýnum og uppbyggilegum augum á samtímann, efla færni sína í að starfa á fleiri sviðum en áður og styrkja stöðu sína á vinnumarkaði.  

Meginþáttur í aðferðafræði kennslu og fyrirkomulags er skapandi og gagnrýnin hugsun en burðargreinar eru fræðigreinar lista og heimspeki. Mörgum tengdum fögum er fléttað saman við meginþátt námsins s.s. ímyndafræði, menningarstjórnun, frumkvöðlafræði, hönnun og tíðaranda, myndmálssögu, tónlistarsögu og –miðlun, skapandi skrifum, aðferðafræði myndlistar og leikhúss, arkitektúr og skipulagi, miðlunarfræði, mannfræði, markaðsfræði og stjórnun. Að auki er boðið upp á gestafyrirlestra einu sinni í viku þar sem sérfræðingar segja frá því sem er að gerast í stefnumótun, rannsóknum og nýsköpun í samfélaginu og utan landsteinanna.

Yfir 40 sérfræðingar koma að náminu

 Yfir 40 sérfræðingar víðsvegar að úr samfélaginu hafa komið að kennslu í Prisma. Meðal þeirra eru Jón Ólafsson heimspekingur, Hallgrímur Helgason rithöfundur, Haukur Ingi Jónasson, guðfræðingur og sálgreinandi, Njörður Sigurjónsson, viðskiptafræðingur og heimspekingur, Kristín Eysteinsdóttir leikstjóri, Ágúst Einarsson, rektor Háskólans á Bifröst, Andri Snær Magnason rithöfundur, Guðmundur Oddur Magnússon (Goddur), prófessor við Listaháskólann, Sveinbjörn I. Baldvinsson, handritshöfundur, Viðar Hreinsson framkvæmdarstjóri ReykjavíkurAkademíunnar, Hjálmar Ragnarsson, rektor LHÍ og tónskáld, Halldór Björn Runólfsson, forstöðumaður Listasafns Íslands, Sigríður Ingvarsdóttir, rekstrarstjóri frumkvöðlaseturs hjá Nýsköpunarmiðstöð,  Sumarliði R. Ísleifsson sagnfræðingur, Þorvaldur Þorsteinsson, rithöfundur og myndlistarmaður, Dóra Ísleifsdóttir, fagstjóri í grafískri hönnun, Halla Tómasdóttir, stjórnarformaður Auður Capital, Sigrún Birgisdóttir, arkitekt og lektor við LHÍ, Guðjón M. Guðjónsson frumkvöðull, Guðfinna Mjöll Magnúsdóttir hönnuður ofl.

Markmið með náminu

1. Þverfagleg þekking

Nemendur styrki þverfaglega menntun sína sem gerir þeim kleift að setja ólíkar starfsgreinar, fræðigreinar, hugmyndir og hluti í samhengi og starfa á fleiri sviðum en áður

2. Fleiri verkfæri í verkfæratöskuna

Nemendur öðlist þau verkfæri, þekkingu, reynslu og stuðning sem geta nýst þeim til að efla stöðu sína sem uppbyggilegir, skapandi og gagnrýnir þátttakendur í samfélaginu og láta framsæknar hugmyndir verða að raunverulegum verkefnum. 

3. Menntun á háskólastigi

Að námi loknu fá nemendur diplóma sem metið er til 16 eininga (ECTS) á háskólastigi. Nemendur sem ætla sér frekari menntun við Háskólann á Bifröst eða Listaháskóla Íslands geta fengið hluta námsins metið inn í nám á bakkálár- og meistarstigi, að gefnum ákveðnum skilyrðum.

4. Umbreyting

Lykilorðið í náminu er umbreyting. Nemendur fá tækifæri til að gaumgæfa þær umbreytingar sem eru að eiga sér stað í samfélaginu útfrá fjölbreyttum sjónarhornum undir leiðsögn sérfræðinga. Í slíku umhverfi verða vandamál að tækifærum, hindranir að flóðgáttum og hugmyndafræðilegt hrun að upphafi á nýjum og spennandi tímum.

Skipulag náms og fyrirkomulag

Heildarfjölda nemenda verður skipt niður í  hópa sem hver hefur sinn „auðveldara” eða umsjónarkennara. Námið er á háskólastigi og ætlað fólki sem hefur að lágmarki stúdentspróf eða jafngildi þess. Að gefnum ákveðnum skilyrðum geta nemendur fengið Prisma metið til 12 eininga (ECTS) í bakkálárnám á Háskólanum á Bifröst og til  6 eininga (ECTS) í meistaranám á Bifröst og Kennslufræðum í Listaháskóla Íslands, að gefnum ákveðnum skilyrðum.

Uppfærðar nánari upplýsingar um stundaskrá, kennara og aðsetur verða tilkynntar síðar á heimasíðum www.lhi.is og www.bifrost.is.

Hér er hægt að nálgast námslýsingu á PRISMA fyrir vorönn 2010 sem hófst þann 1. febrúar 2010.

 

Nánari upplýsingar veitir:

Hrund Gunnsteinsdóttir forstöðukona Prisma í síma 895 6371 eða á hrund@lhi.is.  Einnig er hægt að nálgast upplýsingar um námið á heimasíðum skólanna: www.lhi.is og www.bifrost.is  

 

HÆGT ER AÐ SÆKJA UM NÁM NÚNA

 

 

 

 

 

           

 

 

Háskólinn á Bifröst | 311 Borgarnes | Sími: 433 3000 | Fax: 433 3001 | bifrost@bifrost.is | Afgreiðslutími 08:00 - 12:00 og 13:00 - 16:00 | Vefstjóri